Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 16. febrúar 2026

85. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, fjarfundur, mánudaginn 16. febrúar 2026 kl. 09:00.

Mætt: Einar Freyr Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:


Dagskrá:


• Breytingar á samþykktum jarðvangsins
Þessi tillaga er lögð fram í hagræðingarskyni og í samráði við núverandi endurskoðendur:

10. grein (í núgildandi samþykktum)

Stjórn stofnunarinnar skal velja einn eða fleiri löggilta endurskoðendur (eða endurskoðendafélög) ásamt varamönnum til að endurskoða reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár. Endurskoðendur má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins.


10. grein (með framlagðri breytingu)


Stjórn stofnunarinnar skal velja einn eða fleiri endurskoðendur (eða endurskoðendafélög) ásamt varamönnum til að endurskoða reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár. Endurskoðendur má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins.


Tillagan samþykkt samhljóða, og vísað til síðari umræðu á næsta stjórnarfundi.


• Önnur mál
Sigurður sagði frá erindi er barst jarðvanginum í síðustu viku þar sem honum var boðið að taka þátt í umsókn um Erasmus+ verkefni um jarðvanga og eldfjöll. Verkefnið byggir á grunni fyrra verkefnis um jarðminjar og jarðvanga. Verkefnið nær til jarðvanga í Rúmeníu, Portúgal og Ítalíu, auk eins skóla frá hverju svæði. Allur kostnaður yrði greiddur, einnig vegna vinnu við verkefnið.

Samþykkt að verða við þessu erindi og leita eftir samstarfi við Hvolsskóla.
Samþykkt að stefna að staðfundi í Vík í byrjun mars.


Fleira ekki, fundi slitið kl. 09:11.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.