Fundargerð - 15. október 2025
84. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs í Vík miðvikudaginn 15. október 2025 kl. 17.
Mætt: Björn Þór Ólafsson (varamaður Einars Freys), Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Jóhannes Marteinn Jóhannesson starfsmaður jarðvangsins.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:
Dagskrá:
• Yfirlit á stöðu fjármála
Rekstur jarðvangsins í góðu jafnvægi, enda fékkst ríkisstyrkur 2024 og 2025.
• Fjárhagsáætlun 2026
Gert er ráð fyrir 23,5 mkr framlögum frá sveitarfélögunum 2026, auk þess styrkur frá Vegagerðinni og tekjur af vísindaferðamennskuverkefninu. Skv. reiknireglu byggðri á íbúafjölda verður hlutur Rangárþings eystra 12.783.716 kr., hlutur Mýrdalshrepps 6.415.553 kr. og hlutur Skaftárhrepps 4.300.731 kr. Áætlunin samþykkt samhljóða.
Gert er áfram ráð fyrir tveimur starfsmönnum í fullu starfi.
• Framhald vísindaferðamennsku
Jarðvangurinn kominn með dagsferðaleyfi, nokkrar ferðir framundan næstu mánuði og áframhaldandi markaðssetning. Áhugi komið fram á fjörumælingum, auk jöklamælinga.
• Yfirlit verkefna 2025
Rannsóknarverkefni fyrir Vegagerðina, verkefni lokið, búið að birta skýrslu hjá Vegagerðinni.
Valáfangi í Víkurskóla; rof við Dyrhólaós, skýrsla næsta vor.
Fræðslustígur við Þorvaldseyri, lokið.
Jarðvangsvikan í apríl
Úttekt í júní
Undirbúningur fyirr ný jarðvætti vikunnar, nú í tengslum við myndir frá Reyni Ragnarssyni
Ný skilti við Efra-Hvolshella, Kvernufoss og Gljúfrabúa
Nýtt skilti í Þakgili, samstarf jarðvangsins við einkaaðila
Umsókn um Horizon styrk (Heartbeat) í 3-4 ár, skýrist á næsta ári hvort fær framgang
Grein í bók um þjóðsögur tengdar eldfjöllum (á vegum EGN, European Geoparks Network)
Björgun fýla, samvinna við Vegagerðina og fleiri aðila
Mæling Sólheimajökuls með Hvolsskóla
Samstarf við ýmsa aðila:
▪ Lava Centre, Icelandic Mountain Guides og Kirkjubæjarstofa
▪ EGN fundir, staðbundinn í mars, á netinu í september
▪ Veðurstofan og HÍ
▪ David Evans jarðfræðiprófessor við Durham háskóla
▪ Jarðfræðifyrirlestrar fyrir samstarfsfyrirtæki
Móttaka hópa, t.d. ferðamálanemar frá HÍ, Erasmushópur frá Póllandi, nokkrir erlendir skólahópar, Hvolskóli
Vísindaferðamennskuverkefnið
Rannsóknaráætlanir
Mælingar
Leyfi frá Ferðamálastofu
Samtal við stofnanir
Skýrsla til SASS
Self Drive bæklingur
Samtal við Discover the World og Atlas workshops
Gravel travel
Kynning á verkefninu út á við; ferðaþjónusta, áhrifavaldar, miðlar
Styrkjaumsóknir
Rannsóknarverkefni frá Vegagerðinni um strandlínubreytingar frá Kúðafljóti að Gígjukvísl
Kennsla í Víkurskóla á haustönn – Víkurfjöruverkefnið
Drónamyndataka með Kirkjubæjarskóla (Skaftá, Landbrotshólar), úrvinnsla á vorönn 2026
Fréttabréf í lok árs
Uppfæra heimasíðuna með fréttum
Hugsanlega umsókn í Sprotasjóð með Víkurskóla og Kirkjubæjarskóla
Alþjóðadagur fjalla í desember
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða – nokkrir staðir í skoðun í Skaftárhreppi
Mælingar við Kötlujökul og Sléttujökul
Mælingar í Reynisfjöru
Móttaka á háskólahópi frá Quebec í Kanada, möguleg samvinna við háskólann í Brest
Þekkingar- og rannsóknarmiðstöð ? (Kötlusetur, Kirkjubæjarstofa)
Verkefni 2026
Vísindaferðamennskuverkefnið
Önnur umsókn í Rannsóknarsjóð Vegagerðarinnar ?
Áframhaldandi samvinna við Vegagerðina og HÍ um strandlínur
Heartbeat verkefnið ?
Heimasíðan
Undirbúningur og kennsla í öllum þremur grunnskólunum:
Hvolsskóli – innkoma í áfanga, jöklabreytingar og Drumbabót
Víkurskóli – valáfangi á vorönn og haustönn
Kirkjubæjarskóli – innkoma í áfanga, Skaftá, gervigígar og umhverfisrannsóknir
Setja upp ný kort fyrir gönguleiðir innan jarðvangsins
Úrvinnsla úttektar 2025
Endurnýjun fræðsluskilta, t.d. 2 í hverju sveitarfélagi, t.d.:
Seljalandsfoss og Skógafoss
Reynisfjara og Víkurfjara
Eldhraun og Fjaðrárgljúfur
Vinna að skilgreiningu vísindaráðs Kötlu jarðvangs
Áframhaldandi vinna við stefnumótun
Fundur með jarðvangsfyrirtækjum
Vísindaferðamennskuverkefnið
Fyrstu hóparnir (Reynisfjara og Kötlujökull)
Samtal við landeigendur
Nýting GPS tækisins í sambandi við strandlínueftirlit
Stjórnin lýsti yfir ánægju sinni með þróttmikið starf jarðvangsins.
• Önnur mál
Sigurður sagði frá hugmynd um málþing/ráðstefnu, m.a. í samvinnu við Reykjanes jarðvang og Náttúruverndarstofnun og mögulega fleiri aðila. Í nóvember verður Katla jarðvangur 15 ára og 10 ár síðan UNESCO Global Geoparks komu til sögunnar. Líklega er tíminn of knappur til að halda viðburðinn í nóvember, ákveðið að athuga með að halda hana í jarðvangsvikunni næsta vor.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 18:23