Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 14. maí 2025

81. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs í Vík miðvikudaginn 14. maí 2025 kl. 17.

Mætt: Einar Frey Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess sátu fundinn starfsmennirnir Jóhannes Marteinn Jóhannesson og Ann Peters.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:


Dagskrá
• Undirbúningur fyrir úttekt
Sigurður og Jóhannes fóru yfir drög að dagskránni og var hún samþykkt af stjórninni, Jóhannes fór yfir það sem þarf að gera fram að úttekt.


• Verkefni sumarsins
Úttektin hefur tekin mikinn tíma. Vinna við vísindaferðamennskuverkefnið og fleira, en breskur rannsóknarhópur mun koma í jarðvanginn í byrjun ágúst. Samtarf við Kirkjubæjarskóla. E.t.v. tvö ný rannsóknarverkefni á strandmælingum í samvinnu við

 Vegagerðina.
• Samstarf við Kirkjubæjarskóla
Fyrir liggja drög að samstarfssamningi og er vilji til þess að Kirkjubæjarskóli verði geoskóli í samstarfi við jarðvanginn.


• Vísindaferðamennska – staða á verkefninu
Fyrirhugaðar mælingar á allt að sjö skriðjöklum, og tveimur fjörum. Ann hefur líka sótt um tveggja ára evrópskan verkefnastyrk sem mundi styðja við vísindaferðamennskuverkefnið. Samþykkt að sækja um ferðaskrifstofuleyfi fyrir verkefnið. Aðrar styrkjaumsóknir í farvatninu.


• Kaup á GPS – tæki
Fyrir liggja tilboð og mun Jóhannes vinna úr þeim.

• Önnur mál
Ársreikningur í vinnslu og verður hann tilbúinn fljótlega og verður fjarfundur stjórnar haldinn þegar að því kemur.

Sigurður kynnti tilmæli frá Global Geoparks Network (GGN) um að jarðvangarnir á Íslandi stofni samtök sín á milli sem aðili að GGN.

Sigurður viðraði hugmynd um að hann færi á UNESCO fund jarðvanga í Chile í september. Samþykkt að hann sendi formanni áætlaðan kostnað í þessu sambandi.

Fleira ekki, fundi slitið kl. 18:31.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.