Fundargerð - 05. febrúar 2025
80. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, fjarfundur miðvikudaginn 5. febrúar 2025 kl. 16.
Mætt: Einar Frey Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess sátu fundinn starfsmennirnir Jóhannes Marteinn Jóhannesson og Ann Peters.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:
• Nýjar samþykktir Kötlu Jarðvangs – seinni umræða.
Fyrirliggjandi nýjar samþykktir Kötlu jarðvangs samþykktar samhljóða og munu verða undirritaðar rafrænt.
• Stjórn jarðvangsins og prókúra
Samþykkt að veita Margréti Jónu Ísólfsdóttur kt. 120984-3069 prókúru fyrir jarðvanginn.
Stjórn jarðvangsins skipa:
Tómas Birgir Magnússon formaður kt. 150574-5289, tomas@hvolsvollur.is
Einar Freyr Elínarson kt. 021290-2549, sveitarstjori@vik.is
Sveinn Hreiðar Jensson kt. 080982-4459, shj@klaustur.is
Sigurður Sigursveinsson kt. 030553-5359, sigurdur@hfsu.is
Æsa Guðrúnardóttir kt. 281277-4059, vik@hostel.is
Varamenn:
Anton Kári Halldórsson kt. 030583-3539, anton@hvolsvollur.is
Drífa Bjarnadóttir kt. 280278-5139, drifa@vik.is
Gunnar Pétur Sigmarsson kt. 110786-2559, gps@klaustur.is
María Helga Guðmundardóttir kt. 140488-2329, mariah@hi.is
Rebekka Björk Brynjólfsdóttir kt. 151193-2189, rebekka@hotellaki.is
• Verkefni ársins
Skýrslur vegna fyrirliggjandi úttektar í sumar á lokametrunum, verður síðan skilað til íslensku UNESCO nefndarinnar sem kemur þeim síðan áfram til UNESCO.
Jarðfræðifyrirlestur fyrirhugaður á mánudaginn fyrir eitt samstarfsfyrirtækjanna.
Kennsla í Víkurskóla og Hvolsskóla framundan, Jóhannes var með kynningu í Hvolsskóla í morgun.
Verkefnið um strandmælingarnar á lokastigum. Fréttabréf jarðvangins væntanlegt á næstunni. Fræðslustígurinn við Þorvaldseyri verður væntanlega vígður í jarðvangsvikunni í apríl.
Sigurmundur í Rangárþingi eystra hefur boðið Jóhannesi með á fund með ferðaþjónustufyrirtækjum í Rangárþingi eystra.
Ann sagði frá stöðu vísindaferðamennskuverkefnisins. Það fékk góðar undirtektir á Mannamótum. Fyrstu ferðirnar komnar í sölu í gegnum Gravel Travel. Þarf að taka afstöðu til hvort sótt verði um leyfi til Ferðamálastofu. Samþykkt að jarðvangurinn sæki um ferðaskipuleggjendaleyfi. Í framhaldinu verði tekin ákvörðun um hvort samið verði við bókunarfyrirtæki, t.d. Bókun.
Jóhannes og Sigurður sækja árlegan vorfund Tengslanets evrópskra jarðvanga (EGN) 5. og 6. Mars nk. en það verður haldið í höfuðstöðvum UNESCO í París í tilefni 10 ára afmælis staðarskrár hnattrænna UNESCO jarðvanga (UNESCO Global Geoparks).
• Önnur mál
Einar Freyr greindi frá viðræðum sínum við Umhverfisstofnun varðandi málefni Dyrhólaeyjar og mögulegri aðkomu jarðvangsins að starfseminni þar. Sömuleiðis hefur hann rætt við fulltrúa annarra landeigenda Dyrhólaeyjar varðandi málið.
Jóhannes greindi frá því að hann er að ljúka við skýrslu um strandmælingar í Víkurfjöru undanfarin þrjú ár, hann hefur unnið að henni í eigin tíma en skýrslan verður gefin út í nafni jarðvangsins.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 16:20.