Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 18. janúar 2024

74. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, fjarfundur fimmtudaginn 18. janúar 2024 kl. 16.

Mætt: Einar Frey Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess sat fundinn Jóhannes Marteinn Jóhannesson verkefnastjóri jarðvangsins, og Þórður Freyr Sigurðsson frá SASS sat fundinn undir fyrsta liðnum.

Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:


• Rannsóknarferðamennska SASS og Katla jarðvangur Þórður fór yfir verkefnishugmyndina en hún byggði m.a. á sambærilegu verkefni í Vestmannaeyjum. Fjármagnað af C1 – verkefni í byggðaáætlun, en um slík verkefni geta einungis landshlutasamtökin sótt. 10 mkr styrkur fékkst með möguleika á framlengingu. Grunnhugmynd verkefnisins er að fjölga þekkingarstörfum á svæðinu, þ.e. miðsvæði Suðurlands. Þórður og Jóhannes hafa farið til Vestmannaeyja og kynnt sér verkefnið þar. Þar er um að ræða 10-12 daga verkefni hverju sinni. Samtökin Earth Watch eru aðili að verkefninu í Eyjum í samvinnu við Rannsóknarsetur HÍ í Eyjum. Aðild Earth Watch að nýju verkefni byggir m.a. á forumsókn og heimsókn þeirra til Íslands, og a.m.k. til þriggja ára. Mikilvægt að upplifun þátttakenda verði sú að um raunverulegt framlag til rannsókna sé að ræða. Kallar á ítarlega skipulagningu ferðanna. Gisting í Eyjum hefur verið mismunandi en m.a. í kojum í skátaheimili. – Þátttakendur elda kvöldmat saman en með aðstoð sjálfboðaliða. Í Eyjum eru flestir þátttakendur 50+ að aldri, yfirleitt vel stæðir. Kallar á aðkomu vísindamanns í ferðunum, t.d. jarðfræðings eða öðrum sérfræðingi. Fara þarf nú aftur yfir verkefnishugmyndina, m.a. í ljósi styrkupphæðar, skipa verkefnisstjórn og ráða verkefnisstjóra. Gera þarf samstarfssamning milli SASS og Kötlu jarðvangs um verkefnið. Sérfræðiþekkingin í jarðfræði er fyrir hendi hjá jarðvanginum þannig að e.t.v. er mikilvægt að ráða verkefnisstjóra með sérþekkingu/reynslu í markaðsmálum og ferðaþjónustu. Stjórnarmenn veltu upp nokkrum verkefnahugmyndum. Samþykkt að mynda verkefnisstjórn (Þórður, Tómas, Jóhannes) sem leggja mun drög að starfsauglýsingu.


• Árið 2024 framundan

Jóhannes fór yfir helstu verkefnin framundan:


• Styrkumsóknir til ýmissa verkefna, í samvinnu við ýmsa aðila


• Jarðvætti vikunnar – e.t.v. útvíkkun á verkefninu


• Kynningar og fyrirlestrar fyrir einstök jarðvangsfyrirtæki, þátttaka í faghópi ferðamála á Suðurlandi


• Jarðvangsvikan, þ.m.t. Hjörleifshöfðahlaupið og vígsla á fræðslustígnum á Þorvaldseyri


• Aukið samstarf við Skógasafn, m.a. í sambandi við steinasafn þess


• Samstarf við jarðvangsskólana í Vík og á Hvolsvelli, útikennslusvæði og vísindadagar í skólum


• Verkefni varðandi Drumbabót, mögulega með samstarfssamningi við Náttúrufræðistofnun


• Eftirlit með jarðvættum og viðhaldsþörf þeirra; gerð gagnagrunns o.fl.


• Ferð til Estrela í Portúgal (fullfjármögnuð), EGN fundur í Tyrklandi í mars og EGN ráðstefna á Reykjanesi í október.


• Greinar í fréttabréf og tímarit EGN (European Geoparks Network)


• Alþjóðlegir fræðsludagar (m.a. dagur eldfjalla, dagur jarðbreytileika, dagur fjalla)


• Skýrslur til EGN og GGN (Global Geoparks Network) og ítarlegur undirbúningur úttektar 2025

Tómas og Jóhannes hafa verið að heimsækja jarðvangsfyrirtæki undanfarið, síðast í Lava Centre, undirtektir alls staðar jákvæðar. Sveinn greindi frá áformum Vatnajökulsþjóðgarðs að fá ferðaþjónustuaðila í grennd við Kirkjubæjarklaustur til dagsfundar, gæti verið tilvalið tækifæri fyrir jarðvanginn að ná samtali við ferðaþjónustuaðila austan Mýrdalssands.


• Önnur mál

Formaður greindi frá því að hann hefði sent Vestmannaeyjbæ erindi sem byggði á tillögum í síðustu úttekt Kötlu jarðvangs, þ.e. stækkun til Eyja, en svar hefur ekki borist. Þá kom fram hjá Tómasi og Jóhannesi að í fyrirtækjaheimsóknum hefði verið velt upp hugmyndum um stækkun jarðvangsins til Rangárþings ytra. 

Fleira ekki, fundi slitið kl. 17:00.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.