Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 13. nóvember 2024

78. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, fjarfundur, miðvikudaginn 13. nóvember 2024 kl. 08:15.

Mætt: Einar Frey Elínarson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:


• Nýjar samþykktir Kötlu jarðvangs – seinni umræða
Breytingarnar fela í sér:


o Í 3. gr. um tilgang er bætt við texta um alþjóðlega viðurkenningu o.fl.


o Í 7. gr. um stjórn er breyting í þá veru að fulltrúar Kirkjubæjarstofu, Kötluseturs og Skógasafns verði áheyrnarfulltrúar (en ekki varamenn), heimild til að stofna fagráð, og greiðslur fyrir fundarsetu og akstur.


o Ný 12. gr. þar sem tekið er fram að hagnaði af starfseminni verði varið til verkefna skv. 3. gr.

 Ofantaldar breytingar voru samþykktar samhljóða af stjórn, bæði á 77. fundi 7.11. 2024 og þessum 78. fundi 14.11. 2024.


• Önnur mál Dagsetning stefnumótunarfundar stjórnar. Stefnt að mánudeginum 9. desember 2024.

Fleira ekki, fundi slitið kl. 08:22.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.