Fundargerð - 09. desember 2024
79. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í Vík mánudaginn 9. desember 2024 kl. 09:30.
Mætt: Einar Frey Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess sátu fundinn starfsmennirnir Jóhannes Marteinn Jóhannesson og Ann Peters.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár, sem fólst í umræðu um stefnumörkun og aðgerðaáætlun jarðvangsins.
Jóhannes reifaði yfirlit um fyrirliggjandi verkefni jarðvangsins, en þau byggja á tilgangi og markmiðum eins og þau eru skilgreind í samþykktum hans.
1. Verndun og nýting jarðminja
Jarðvangurinn veitir sveitarfélögunum sérfræðiaðstoð við uppbyggingu áfangastaða. Sama á við um áfangastaði í einkaeigu, en þar njóta samstarfsfyrirtæki jarðvangsins forgangs. Jarðvangurinn getur einnig haft forgöngu um skilgreiningu nýrra áfangastaða í samvinnu við sveitarfélögin, og eftir atvikum aðra landeigendur. Sveitarfélögin og landeigendur bera ábyrgð á verndun jarðminjanna en njóta ráðgjafar jarðvangsins.
2. Jarðfræðitengd ferðamennska
Jarðvangurinn veitir tilteknum samstarfsfyrirtækjum sérstaka jarðfræðiráðgjöf, byggða á samstarfssamningum.
3. Markaðsstarf
Stefnt er að því að efni visitsíðna sveitarfélaganna (visitklaustur.is, visitvik.is, visithvolsvollur.is) verði hýst hjá Markaðsstofu Suðurlands (south.is). Upplýsingar um jarðvangsfyrirtækin verði sýnileg hjá south.is, hvort sem þau eru aðilar að Markaðsstofunni eða ekki. Jarðvangsfyrirtækin verði einnig áfram sýnileg á heimasíðu jarðvangsins en að öðru leyti verði heimasíða jarðvangsins ekki vettvangur fyrir markaðsstarf fyrirtækja.
4. Vísindaferðamennskuverkefnið (markaðsstarf og fræðslu- og rannsóknarstarf)
Ann Peters kynnti stöðu verkefnisins; bæði til næstu 1-2 ára, og svo 3-5 ára. Áætlunin samþykkt og ákveðið að sækja um leyfi til dagsferða hjá Ferðamálastofu.
5. Fræðsla og rannsóknarstarf
Gert ráð fyrir áframhaldandi samstarfi við Vegagerðina um fjörumælingar og mögulega dýptarmælingar, m.a. í samvinnu við Víkverja. Einnig í undirbúningi verkefni með þrívíddarmælingum á jarðvættum í samstarfi við norska og portúgalska aðila.
Áframhaldandi samstarf við grunnskólana á Hvolsvelli og í Vík, og samtal við Kirkjubæjarskóla.
6. Viðhalda UNESCO vottun svæðisins
Úttektarvinnan í gangi hjá starfsmönnum jarðvangsins og ritara, en skila þarf viðamiklum gögnum í því sambandi til UNESCO fyrir lok janúarmánaðar.
Áhersla á að bregðast við tilmælum úr síðustu úttekt. Samstarfsverkefni við aðra jarðvanga eru mikilvæg, einnig sýnileiki í samfélaginu og vinna að heimsmarkmiðunum, m.a. á sviði jarðvár og loftslagsbreytinga. Mikilvægt að tryggja þátttöku í úttektinni sem verður líklega í júní-ágúst.
7. Jarðvangsfyrirtækin
Jarðvangurinn veitir samstarfsfyrirtækjunum aðstoð við styrkumsóknir og gerð fræðsluskilta. Auk þess jarðfræðifræðslu skv. sérstökum samstarfssamningum.
8. Stjórnunaráætlun og samvinna við sveitarfélögin
Samþykkt að sveitarfélögin beiti sér á vettvangi Almannaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu fyrir virkri aðkomu jarðvangsins að fræðslu til íbúa um náttúruvá og almannavarnir. Mögulega einnig varðandi rannsóknir og vöktunarverkefni. Umræður um hvort jarðvangurinn ætti að taka að sér umsjón og rekstur með Dyrhólaey. Einari Frey falið að kanna frekar afstöðu ríkisins til þess.
- Fleira ekki og fundi slitið um kl. 12