Fundargerð - 07. október 2024
76. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Kötlusetri í Vík mánudaginn 7. október 2024 kl. 17.
Mætt: Einar Frey Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess sátu fundinn að hluta Jóhannes Marteinn Jóhannesson verkefnastjóri jarðvangsins og Ann Peters starfsmaður vísindaferðamennskuverkefnisins.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:
• Verkefni ársins og hvað er framundan hjá jarðvanginum Jóhannes fór yfir stöðuna það sem af er ári:
• Þorvaldseyri
• Rannsóknarverkefnið frá Vegagerðinni
• Kennsla í Víkurskóla, skýrsla um Höfðabrekkujökul
• Sólheimajökull með Hvolsskóla
• Vísindaferðamennskuverkefnið
• Ný skilti við Efra-Hvolshella
•Jarðvangsvikan
• Qgis kortavinna og gagnagrunnur
• Menntaverðlaun og Landinn
• Jarðvætti vikunnar
• Björgun fýla
• Aðkoma að Skógafossi (og Dyrhólaey)
• Heimsókn í Skaftárhrepp og nýjr samstarfsaðilar
• Ferð til Estrela og lok síðasta erlenda verkefnis jarðvangsins Framundan á árinu:
• Rannsóknarverkefnið frá Vegagerðinni
• Kennsla í Víkurskóla á haustönn
• Klára skýrsluna fyrir úttekt
• Vísindaferðamennskuverkefnið
• Fréttabréf í lok árs
• Lokaskýrsla í Sprotasjóð
• Lokaskýrsla fyrir Þorvaldseyri
• Vinna að langtímaáætlun, 2 – 5 ára áætlun Meðal verkefna næsta árs:
• Úttekt
• Greina steinasafn Skógasafns (sýnileiki)
• Vísindaferðamennskuverkefnið
• Önnur umsókn í Rannsóknarsjóð Vegagerðarinnar?
• Setja alla jarðfræði jarðvangsins á heimasíðuna
• Tengja visit síðurnar við south og south við jarðvanginn
• Kennsla í Víkurskóla og Hvolsskóla, hugsanlegt verkefni með Vatnajökulsþjóðgarði tengt kennslu í Kirkjubæjarskóla
• Frekara samstarf við HÍ (ferðamálafræði og jarðfræði), vöktun ákveðna svæða? + hýsing nemenda Þá kynnti Jóhannes nokkur möguleg erlend verkefni sem mundu styðja við önnur verkefni. Stjórn lýsti ánægju með öfluga starfsemi jarðvangsins. Ann Peters kynnti stöðu vísindaferðamennskuverkefnisins, en undirbúningur þess er í góðum farvegi. Formanni falið að fylgja málinu eftir með hliðsjón af umræðum á fundinum.
• Rekstraráætlun 2025
Farið yfir drög að áætlun. Samþykkt að fara þess á leit við aðildarsveitarfélögin að framlög ársins 2025 verði óbreytt, þ.e. 20 mkr, en skipting miðist við íbúafjölda þeirra 1. október 2024. 2x10 mkr. styrkur frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu 2024 og 2025, sem tilkynnt var um á evrópskri jarðvangsráðstefnu í Keflavík 2. október sl., er mikilvæg viðurkenning á árangri jarðvangsins og hvatning til frekara starfs.
• Undirbúningur fyrir úttekt 2025
Jóhannes greindi frá málnu og er stefnt að því að skila þeim gögnum fyrir árslok, en um viðamikla skýrslugerð er að ræða í því sambandi.
• Önnur mál
Ljúka þarf við skráningu á stjórn jarðvangsins hjá Fyrirtækjaskrá og mun formaður sjá um það.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 19:30.