Fundargerð - 06. nóvember 2024
77. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, fjarfundur, miðvikudaginn 6. nóvember 2024 kl. 09:30.
Mætt: Einar Frey Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Tómas Birgir Magnússon, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til fyrirliggjandi dagskrár:
• Fjárhagsáætlun 2025
Áætlunin gerir ráð fyrir 37,2 mkr tekjum og útgjöldum upp á rúmlega 33,3 mkr. Gert er ráð fyrir tveimur starfsmönnum í fullu starfi.
Varðandi framlög sveitarfélaganna er nú gert ráð fyrir að þau séu í réttu hlutfalli við íbúafjölda 1.10.2024. Skv. því verður hlutur Rangárþings eystra 54%, Mýrdalshrepps 27% og Skaftárhrepps 18%, samtals 20 mkr, og verða því framlög sveitarfélaganna óbreytt að krónutölu fjórða árið í röð.
Áætlunin samþykkt samhljóða.
• Framlenging á ráðningu Ann Peters Samþykkt að framlengja núverandi ráðningu Ann Peters til ársloka 2025.
• Önnur mál Samþykkt fyrirliggjandi drög að breyttum samþykktum jarðvangsins og vísað til síðari umræðu í stjórn að viku liðinni.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 10:00.