Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 27. júní 2023

70. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Teams þriðjudaginn 27.6 2023 kl. 9.

Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Einar Freyr Elínarson, og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Forföll: Æsa Guðrúnardóttir og Sveinn Hreiðar Jensson.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá formanni:


• Fjárhagsstaða jarðvangsins og fjárhagsáætlun þessa árs 

Fyrir liggur að full lokagreiðsla berst frá Ruritage og að 7 mkr styrkur SASS í svæðismörkun mun nýtast á árinu. Einari Frey falið að kanna hver framlög sveitarfélaganna verði fyrir árið 2023.


• Undirbúningur fyrir fund með umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra


Formaður kynnti drög að uppleggi. Í umræðum komu ábendingar um fleiri atriði, t.d. áherslu á mikilvægi fræðslu um náttúru og menningu fyrir nýja erlenda íbúa svæðisins, eldri og yngri. Mikilvægt að starf jarðvanga verði skilgreint sem samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga.

• Fjárhagsáætlun fyrir 2024
Frestað fram yfir fund með ráðherra og afgreiðslu ársreiknings 2022.

• Yfirlit verkefna 2023
Formaður lagði fram yfirlitið sem ber vitni öflugu starfi jarðvangsins.

• Önnur mál
Samþykkt að Jóhannes komi í stað Berglindar sem EGN-CC fulltrúa Kötlu jarðvangs.

Stefnt er að næsta stjórnarfundi í næstu viku þar sem ársreikningur 2022 verði afgreiddur ásamt rekstraráætlun 2023.

Fleira ekki, fundi slitið kl. 09:50.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.