Fundargerð - 24. febrúar 2023
67. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Leikskálum í Vík föstudaginn 24.2 2023 kl. 16.
Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Einar Freyr Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund, fundargerðir síðustu þriggja stjórnarfunda, sem voru haldnir í fjarfundi, voru staðfestar með undirritun, og síðan var gengið til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá formanni:
• Aðgerðir til að bregðast við rekstrarvanda jarðvangsins
Formaður gerði grein fyrir samtölum oddvita og sveitarstjóra um fjárþörf jarðvangsins, beiðni sinni og Antons Kára sveitarstjóra um fund með umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og fundi sínum með starfsmönnum jarðvangsins.
Málið rætt ítarlega. Ekki liggja fyrir vilyrði sveitarfélaga um fjármögnun tveggja starfsmanna til frambúðar. Í ljósi fjárhagsstöðunnar og fjárskuldbindinga sér stjórnin sig nauðbeygða til að segja nú upp framkvæmdastjóra. Lögð verði áhersla á að tryggja framgang þeirra verkefna sem nú er unnið að. Stjórnin færir framkvæmdastjóra þakkir fyrir ákaflega vel unnin störf í þágu jarðvangsins.
Stjórnin mun óska eftir fundi með umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til að ræða stuðning ráðuneytis við starfsemi jarðvangsins. Jafnframt mun stjórnin leita eftir fundi með eina ferðaklasanum í jarðvanginum, Visit Vík. Ásetningur er að leita allra leiða til að styrkja jarðvanginn í sessi.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 19:00