Fundargerð - 10. maí 2023
69. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Teams miðvikudaginn 10.5 2023 kl. 9.
Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Einar Freyr Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá formanni:
• Staða jarðvangsins og framtíð hans
Komin beinagrind að nýrri heimasíðu. Forritarinn kemur til Víkur kl. 13 og kynnir drögin á fundi í Kötlusetri og er reiðubúinn til samtals um kynningar– og vefmál ferðaþjónustunnar. Æsa mun hafa samband við stjórn Visit Vík og bjóða þeim á kynninguna, en fundur verður öllum opinn. Stjórnin sammála um mikilvægi kynningar á nýrri heimasíðu fyrir ferðaþjónustuaðilum með það að markmiði að síðan verði sameiginlegur kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á öllu jarðvangssvæðinu.
Fram komu ábendingar um mikilvægi þess, m.a. í ljósi mikillar nýliðunar í ferðaþjónustunni, að kynna betur þátt jarðvangsins í uppbyggingu áfangastaða á svæðinu.
Kynnt voru gögn af heimasíðu Samtaka ferðaþjónstunnar SAF – Ferðagögn – Samtök ferðaþjónustunnar þar sem fram kemur hversu gríðarlega mikilvæg ferðaþjónustan er á svæðinu.
Kynnt svar samantekt um áætlaðan kostnað við reglubundið erlent samstarf jarðvangsins.
Rætt var um mikilvægi þess að sveitarfélögin beittu sér fyrir samtali við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um verkefni jarðvangsins og stuðning við þau.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 9:54.