Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 09. nóvember 2023

73. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Leikskálum í Vík fimmtudaginn 9.11. 2023 kl. 17.

Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Drífa Bjarnadóttir í forföllum Einars Freys Elínarsonar, Æsa Guðrúnardóttir og Sveinn Hreiðar Jensson, og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess sat Jóhannes M. Jóhannesson verkefnastjóri jarðvangsins fundinn undir fyrsta liðnum.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá formanni:

 

• Verkefni 2023 og 2024
Jóhannes fór yfir stöðu verkefna:


2023. Ýmsir fundir, nýr áfangastaður við Þorvaldseyri, jarðvætti vikunnar, setja inn efni á nýja heimasíðu – í því sambandi var rætt um nýtingu á efni á óvirkum visit síðum (visitklaustur og visitvik). Nýting á SASS styrknum (um svæðismörkun), samstarf við skólana, ný fræðslu- og upplýsingaskilti (í Rangárþingi eystra) og gerð gagnagrunns um jarðvættin. Fréttabréf jarðvangsins í lok ársins. Aðkoma að SASS verkefninu um vísindaferðamennsku.


2024. Hugmynd um styrkumsókn til að búa til app um landslags- og jarðfræðileiðsögn í jarðvanginum (landscape themed trail), sbr. tilmæli í síðustu úttekt. Mögulegar styrkumsóknir um fræðslu á jarðvættum í Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi, sbr. verkefnið á Þorvaldseyri. Aukið samstarf við jarðvangsfyrirtækin. Ýmis reglubundin verkefni, t.d. jarðvangsvikan, samstarf við skólana (t.d. með valáföngum), þátttaka í erlendu samstarfi o.fl. Aukið samstarf við Skógasafn, sbr. tilmæli í síðustu úttekt. Hugmynd um gerð útikennslusvæðis. Ný fræðsluskilti við ýmis jarðvætti, og endurnýjun annarra. Skýrslugerð í lok ársins varðandi úttektina 2025.

• Fjárhagsáætlun 2024 - drög Þessi drög verða höfð til hliðjsónar við gerð endanlegrar áætlunar, m.a. í kjölfar nánara samtals við fyrirtækin um nýja heimasíðu og fleira, og samtal við ráðuneytin um fjárstuðning. Rætt um mikilvægi þess að fjármagna tímabundin störf að einstökum verkefnum, t.d. með háskólanemum úr héraði, auk grunnfjármögnunar vegna verkefnastjóra.

 • Framlög aðildarsveitarfélaga Sveitarfélögin eru þessa dagana og vikurnar að vinna með fjárhagsáætlanir sínar fyrir næsta ár og er gert ráð fyrir að framlög þeirra verði a.m.k. í takt við framlög yfirstandandi árs.

• Samningar við ferðaþjónustuaðila Formaður kynnti drög að nýjum samningstexta, með tvenns konar greiðslum, þ.e. hærri greiðslu fyrir meiri þjónustu jarðvangsins. Drögin verða rædd frekar á vettvangi stjórnar, viðruð hugmynd um þrenns konar aðildargjöld; brons, siflfur og gull. 

• Önnur mál Sigurður kynnti minnisblað um ein tilmæli síðustu úttektar um mögulega útvíkkun jarðvangsins til Vestmannaeyja. Samþykkt að formaður taki málið upp við Vestmanneyinga. 

Fleira ekki, fundi slitið kl. 18:48

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.