Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 09. mars 2023

68. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Teams fimmtudaginn 9.3 2023 kl. 16.

Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Einar Freyr Elínarson, Sveinn Hreiðar Jensson, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá formanni:


• Næstu skref og aðkoma sveitarfélaganna
Fram kom að sveitarfélögin stefna að því að auka aðkomu starfsmanna sveitarfélaganna að verkefnum jarðvangsins. Sigurður mun senda á stjórnarmenn fyrirliggjandi samninga við tengiliði í sveitarfélögunum. Skilgreina þarf umfang vinnu við stjórnun og tengsl við UNESCO.


• Framlög sveitarfélaga 2023. Samþykkt að senda út reikninga á sveitarfélögin fyrir helmingi áætlaðra framlaga ársins.Einar þurfti að víkja af fundi að loknum þessum lið.


• Samþykktir jarðvangsins. Ákvörðun frestað.


• Önnur mál.


Sigurður lagði fram eftirfarandi bókun:
Það er ánægjulegt ef sveitarfélög Kötlu jarðvangs ætla nú að snúa bökum saman við að vinna eftir markmiðum jarðvangsins eftir andvaraleysi síðustu ára. Fráfarandi framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind Sigmundsdóttir, hefur unnið þrekvirki við að leiða starf jarðvangsins við þessar aðstæður. Ég hef unnið náið með henni undanfarin ár að málefnum jarðvangsins og get staðfest það að hún hefur lagt sig fram við verkefnið langt umfram það sem hægt er að ætlast til. Það ætti að vera umhugsunarefni fyrir stjórnsýslu sveitarfélaganna að nýta slíkan mannauð ekki betur.


Stjórn jarðvangsins tekur heilshugar undir þessa bókun.

Stefnt að næsta stjórnarfundi í þar næstu viku. 

Fleira ekki, fundi slitið kl. 17.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.