Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 05. september 2023

72. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Vík þriðjudaginn 5.9. 2023 kl. 14.

Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Einar Freyr Elínarson, Æsa Guðrúnardóttir og Sveinn Hreiðar Jensson, og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá formanni:


1. Ársreikningur 2022


Rekstrarafkoman var jákvæð á árinu að fjárhæð 1,4 mkr samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé var 11,4 mkr í árslok skv. efnahagsreikningi. Framlög sveitarfélaganna þriggja námu 20 mkr borið saman við 12 mkr 2021. Ríkisframlagið var 20 mkr 2021 en ekkert 2022. Framlög vegna erlendra samstarfsverkefna námu um 14,7 mkr 2022 borið saman við 2,1 mkr 2021.

Reikningurinn staðfestur með undirritun stjórnarmanna.


2. Staða jarðvangsins og framtíð hans

Skv. drögum að rekstraráætlun mundu óbreytt framlög sveitarfélaga (samtals 20 mkr) nægja fyrir grunnrekstri jarðvangsins, miðað við einn starfsmann, á næsta ári. Stjórn jarðvangsins beinir því til aðildarsveitarfélaganna að halda a.m.k. óbreyttum framlögum til jarðvangsins 2024. Einar og Sveinn munu leita eftir fundi með menningar- og viðskiptaráðherra varðandi mögulegan fjárstuðning við jarðvanginn, en málefni íslensku UNESCO nefndarinnar heyra undir það ráðuneyti.

Í kjölfar fundar stjórnar með stjórn Visit Vík fyrr í sumar er stefnt að öðrum fundi þar sem kannaðir verða nánar möguleikar um samstarf, t.d. í tengslum við nýja heimasíðu jarðvangsins.

Rætt um mögulega þátttöku jarðvangsins í viðburðum framundan, t.d. Regnboganum, uppskeruhátíð í Skaftárhreppi og starfsemi Ferðafélags Rangæinga, t.d. með leiðsögn í gönguferðum.

Fleira ekki, fundi slitið kl. 15.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.