Fundargerð - 05. júlí 2023
71. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Vík miðvikudaginn 5.7. 2023 kl. 17.
Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Einar Freyr Elínarson, Æsa Guðrúnardóttir og Sveinn Hreiðar Jensson, og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund og var gengið til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá formanni:
• Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2023
Fyrir liggur áætlun um 20 mkr framlög frá sveitarfélögunum þremur (10+5+5). Auk þess kemur lokagreiðsla styrks frá Ruritage verkefninu til ráðstöfunar 2023 (um 5,4 mkr) og eftirstöðvar styrks frá SASS um svæðismörkun (7 mkr). Þessar fjárveitingar munu duga til að mæta áætluðum kostnaði við rekstur jarðvangsins 2023.
• Fundur með umhverfisráðherra – niðurstöður
Ráðherra boðar frumvarp fljótlega í samráðsgátt stjórnvalda um breytingar á stofnunum ráðuneytisins og verkefnum þeirra, og hvatti sveitarfélögin til að rýna það og sagðist reiðubúin til samtals í því sambandi. Ákveðið að óska einnig eftir fundi með menningar- og viðskiptaráðherra.
• Fjárhagsáætlun 2024
Formanni falið að vinna drög með Margréti Jónu fjármálastjóra Rangárþings eystra.
•Önnur mál
Stefnt að gerð ársreiknings 2022 nú alveg á næstunni, og fjarfundi stjórnar til staðfestingar hans.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 18.