Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 29. Desember 2022

66. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Teams fimmtudaginn 29.12 2022 kl. 09:30.

Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Björn Þór Ólafsson, Sveinn Hreiðar Jensson, Æsa Guðrúnardóttir og
Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Berglind Sigmundsdóttir
framkvæmdastjóri.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund, og gengið var til dagskrár, sem lá fyrir í tölvupósti frá
formanni um aðgerðaáætlun vegna fjárhagsstöðu Kötlu jarðvangs:


Framkvæmdastjóra falið að taka saman yfirlit um helstu verkefni jarðvangsins frá stofnun hans og
fjármögnun þeirra, en einnig að kanna möguleika á hagræðingu í almennum rekstri jarðvangsins og
koma með tillögur fyrir 10. janúar 2023.


Stjórn jarðvangsins mælist til þess við sveitarfélögin að þau skapi svigrúm til að ráðrúm gefist til þess
að treysta rekstrargrundvöll jarðvangsins til framtíðar, sem taki m.a. til eftirfarandi atriða:


1. Að óskað verði eftir formlegri afstöðu sveitarfélaganna sem standa að jarðvanginum, þau
beðin um að taka afstöðu til eftirfarandi leiða í ljósi stöðunnar. Sú afstaða verði ljós eigi síðar
en 31. janúar næstkomandi:


a. Geta sveitarfélögin tryggt áframhaldandi starfsemi jarðvangsins með auknu fjármagni sem
samsvara heildar rekstrarframlögum 2021 að upphæð 32 milljónir króna? Gert er ráð fyrir
samtals 18,1 milljón til rekstrar jarðvangsins í fjárhagsáætlunum sveitarfélaganna fyrir 2023.


b. Að enn frekar verði leitað til ríkisins og annarra aðila um rekstrarfé til jarðvangsins og að
meðan á þeirri vinnu stendur tryggi sveitarfélögin rekstrarframlög til jarðvangsins. Frá 2017 til
2021 styrkti ríkið jarðvanginn um 104.000 milljónir.


c. Telja sveitarfélögin að fyrirsjáanlegt sé að ekki verði hægt að tryggja rekstur jarðvangsins
með öðrum hætti en með núverandi framlögum sveitarfélaganna til næstu ára og því verði
verkefninu hætt og jarðvangurinn lagður niður .


2. Athuga hvort aðrir stofnaðilar jarðvangsins séu tilbúnir að leggja fé til rekstrar hans.


3. Eiga samtal við fyrirtæki á svæði jarðvangsins og hagsmunasamtök ferðaþjónustunnar á
svæðinu um að leggja honum til rekstrarfé í formi árgjalda eða styrkja, sem sannarlega
mundu skipta máli í rekstri hans.


4. Fylgja eftir tillögum úttektaraðila um að útvíkka jarðvanginn til Vestmannaeyja.


5. Eiga samtal við Markaðsstofu Suðurlands um frekara samstarf varðandi markaðssetningu á
svæði jarðvangsins.


Með þessu ættu að liggja fyrir skýrar línur eigi síðar en 31. janúar næstkomandi varðandi framtíðarhorfur Kötlu jarðvangs um mögulega fjármögnun til framtíðar. Í framhaldi af því yrði unnið samkvæmt þeim niðurstöðum.


6. Önnur mál


Engin önnur mál.


Stefnt að næsta fundi þriðjudaginn 10. janúar kl. 09:30


Fleira ekki, fundi slitið kl. 10:31.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.