Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 23. September 2022

64. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Kötlusetri föstudaginn 23.9 2022 kl. 13.

Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Einar Freyr Elínarson í forföllum Björns Þórs Ólafssonar, Æsa
Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Berglind
Sigmundsdóttir framkvæmdastjóri.
Forföll: Sveinn Hreiðar Jensson.


Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund, og gengið var til dagskrár:


Dagskrá:


 Fundargerð 63. fundar staðfest með undirritun.


 Fjárhagsáætlunin 2023 – umræður og undirbúningur Rætt um verklag, samþykkt að framkvæmdastjóri fylgi eftir tillögum stjórnar við
framkvæmdastjóra sveitarfélaganna. Samningurinn við ríkið rann út í árslok 2021. Samþykkt
að framkvæmdastjóri og sveitarstjóri Mýrdalshrepps móti verkefnatillögu sem kynnt verður
aftur fyrir stjórn um fræðslutengt verkefni og viðræður hafnar við ríkisvaldið um fjármögnun.
Grunnrekstur jarðvangsins við núverandi aðstæður kostar um 35 mkr á ári. Vonast er til að
rekstrarafkoma yfirstandandi árs verði jákvæð.


 Samþykktir – fara yfir endurskoðaðar samþykktir
Farið yfir fyrri tillögur um breytingar. Drög að breyttum samþykktum samþykktar samhljóða
og vísað til síðari umræðu í stjórn. Í framhaldinu verður tilkynnt til Fyrirtækjaskrár um nýjar
samþykktir og skipan nýrrar stjórnar.


 Erindi Víkurskóla - aðkoma að fastri kennslu í skólum – vilyrði stjórnar
Stjórnin tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra að fylgja því eftir.


 Beiðni Rannsóknamiðstöð Ferðamála um álit jarðvangs að vindorkugarði Málinu frestað


 Önnur mál


o Samþykkt að fyrirliggjandi drög að umsögn jarðvangsins um námuvinnslu á
Mýrdalssandi verði send aðildarsveitarfélögunum. Stjórn jarðvangsins telur mikilvægt
að sveitarstjórnirnar ræði hvernig jarðvangurinn eigi að bregðast við beiðnum um
umsagnir.


o Samþykkt að framkvæmdastjóri sendi stjórninni tillögu að skipulagi vinnu við svæðismörkunina, sbr. styrkinn frá SASS.


Fleira ekki, fundi slitið kl. 15:30.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.