Fundargerð - 21. Desember 2022
65. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Teams miðvikudaginn 21.12 2022 kl. 09:30.
Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Björn Þór Ólafsson, Sveinn Hreiðar Jensson, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Berglind Sigmundsdóttir framkvæmdastjóri.
Tómas Birgir Magnússon formaður setti fund, og gengið var til dagskrár:
Dagskrá:
• Næsta starfsár. Fyrir liggja ákvarðanir sveitarfélaganna um framlög til jarðvangsins á næsta ári. Ekki hafa fengist vilyrði fyrir fjármögnun frá ríkinu. Grípa þarf til ráðstafana vegna þessa. Framlög sveitarfélaganna vegna 2023 eru samtals 18,1 mkr (10 mkr frá Rangárþingi eystra og 4,5 mkr frá Mýrdalshreppi og 3,6 mkr hjá Skaftárhreppi).
Sigurður lagði fram eftirfarandi bókun: Mér eru það mikil vonbrigði að sveitarfélög jarðvangsins undir fráfarandi stjórnarformennsku Rangárþings eystra virðast ekki hafa unnið markvisst með niðurstöður greiningar Alta á „Sýn um hlutverk og tækifæri til eflingar“ Kötlu jarðvangs sem Alta kynnti fyrir sveitarfélögunum á fundi í Vík sumarið 2020, en sveitarfélögin sjálf keyptu þessa greiningarvinnu og ráðgjöf. Jafnframt eru það vonbrigði að fráfarandi stjórn virðist ekki hafa leitað eftir endurnýjun samnings Kötlu jarðvangs við umhverfis- og auðlindaráðuneytið í fyrra þó svo drög framkvæmdastjóra að slíku erindi hafi legið fyrir, en það voru einmitt sveitarfélögin sem náðu fram þeim samningi í gegnum þáverandi stjórn jarðvangsins 2016. Þá virðast sveitarfélögin ekki hafa sent erindi til fjárlaganefndar í þessu sambandi.
Nú skiptir öllu að aðilar snúi bökum saman til að treysta grundvöll starfsemi jarðvangsins, m.a. með samstilltu átaki gagnvart ríki og ráðuneytum, og að sveitarfélögin þrjú og atvinnulifið nýti þau tækifæri sem gæðavottun UNESCO veitir svæðinu. Mikilvægt er að þegar kemur að næstu úttekt 2024/2025 verði komin festa í fjármögnun jarðvangsins.
Málið rætt frá ýmsum hliðum. Formanni stjórnar falið að vinna að áætlun um viðbrögð við fjárhagshorfum næsta árs. Stefnt að næsta stjórnarfundi fimmtudaginn 29.12. kl. 09:30 þar sem ákvörðun verði tekin um framhaldið.
• Önnur mál Engin önnur mál.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 11:00.