Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 07. Júlí 2022

63. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Kötlusetri fimmtudaginn 7.7 2022 kl. 16.

Mætt: Tómas Birgir Magnússon, Björn Þór Ólafsson, Sveinn Jensson, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður
Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sátu fundinn starfsmenn jarðvangsins, Berglind
Sigmundsdóttir framkvæmdastjóri og Jóhannes Marteinn Jóhannesson verkefnastjóri.
Tómas Birgir Magnússon setti fund, og gengið var til dagskrár:


Dagskrá:


1. Kynning á jarðvanginum fyrir nýrri stjórn.
Berglind greindi frá þróun jarðvangsins frá stofnun hans 2010, starfsmannahaldi, verkefnum
o.fl. Einnig greindi hún frá þeim sex tilmælum (recommendations) sem komu frá UNESCO í
kjölfar úttektarinnar 2021. Að lokum fór hún yfir helstu viðfangsefni næstu ára, og greindi frá
hugmyndum sínum um hvernig tryggja mætti tengsl og samvinnu milli aðila í jarðvanginum,
en þessar hugmyndir höfðu verið kynntar fráfarandi stjórn. Í umræðum kom m.a. fram
mikilvægi þess að ná betur til almennings, og að fjármögnun sem einungis er bundin við
sveitarfélögin sé krefjandi fyrir þau. Stjórnin leggur áherslu á áframhaldandi aðkomu ríkisins
að fjármögnun jarðvangsins, en ríkisframlögin féllu niður á yfirstandandi ári.


2. Ársreikningur Kötlu jarðvangs 2021
Berglind fylgdi ársreikningnum úr hlaði. Reksturinn á árinu var í jafnvægi, þó með lítils háttar
halla. Ársreikningurinn var staðfestur með undirritun.


3. Rekstrar‐ og starfsáætlun ‐ Framkvæmdastjóri fer yfir drög að rekstrar‐ og starfsáætlun 2022.
Ákveðið að framkvæmdastjóri uppfæri áætlunina og sendi fulltrúum sveitarfélaganna í stjórn.
Í framhaldinu munu fulltrúarnir leita eftir staðfestingu sveitarfélaganna á framlögum fyrir
2022. Jafnframt að jarðvangurinn leiti eftir því að fá fund með einstökum sveitarstjórnum um
málefni jarðvangs.


4. Stjórnin skiptir með sér verkum. Formaður verður Tómas Birgir Magnússon, Sveinn Jensson
varaformaður og jafnramt ritari, og Björn Þór Ólafsson gjaldkeri.


5. Styrkur frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna áfangastaðar við Þorvaldseyri.
Stjórnin samþykkir að framkvæmdastjóri sendi erindi til Rangárþings eystra um að
sveitarfélagið verði samstarfsaðili í þessu verkefni og ábyrgist upphafsgreiðslur þannig að
hægt verði að skrifa undir samning um verkefnið við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.


6. Nýjar samþykktir – drög að nýjum samþykktum jarðvangsins. Málinu frestað.


7. Önnur mál


Fleira ekki, fundi slitið kl. 19:35

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.