Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 24. Ágúst 2021

60. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn á Hvolsvelli, þriðjudaginn 24.8 2021 kl. 13-15.

Mætt: Lilja Einarsdóttir, Einar Freyr Elínarson í forföllum Þorbjargar Gísladóttur, Æsa Guðrúnardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Eva Björk Harðardóttir boðaði forföll og einnig varamaður hennar, Ólafía Jakobsdóttir.

Einnig sat fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind Sigmundsdóttir.


Lilja Einarsdóttir formaður stjórnar setti fund, og gengið var til fyrirliggjandi dagskrár:


• Fundargerð 59. fundar staðfest með undirritun. Umræða um samþykktir félagsins og skipan stjórnar. Framkvæmdastjóra falið að yfirfara samþykktirnar í ljósi umræðu á fundinum og koma með tillögur að breytingum.


• Uppfærsla á skráningu stjórnar hjá Fyrirtækjaskrá. Ákveðið að bíða með skráninguna þar til endurskoðun samþykkta er lokið.


• Place Branding workshop. Fyrir liggur tilboð frá enskum sérfræðingum um fjögurra klukkustunda vinnustofu e.h. 5. október næstkomandi. Stjórnin samþykkir að ganga að tilboðinu. Gert er ráð fyrir 15 þátttakendum. Rætt um mögulega þátttakendur og framkvæmdastjóra falið að undirbúa fundinn.


• Úttekt UNESCO í október. Nú liggur fyrir ákvörðun um úttekt, með fyrirvara um ástandið vegna Covid, vikuna 18. – 22. október. Úttektaraðilarnir tveir koma að þessu sinni frá Englandi og Þýskalandi. Úttekt á vettvangi verði þriðjudag – fimmtudag (19. – 21. október), einn dag í hverju sveitarfélagi. Vegna Covid voru engar úttektir 2020 og nú í haust er einungis stefnt að úttektum í Evrópu. Síðasta úttekt á Kötlu jarðvangi var 2017 þannig að úttektin núna er á réttum tíma.


Berglind fylgdi úr hlaði matsskjölum sem Katla sendi UNESCO sl. vetur en þau eru lögð til grundvallar úttektinni í október. Samþykkt að jarðvangurinn láti prenta viðkomandi gögn fyrir stjórn og tengiliði.


• Samráðsnefndir. Berglind rifjaði upp hugmyndir sem voru kynntar fyrr í sumar og fólu í sér fjórar nefndir (Áfangastaðurinn Katla jarðvangur, fræðsla og rannsóknir, ferðaþjónusta/framleiðendur/markaðsmál, og menning). Samþykkt að leggja áherslu á að koma af stað vinnuhópi um áfangastaðinn Kötlu jarðvang.


• Umsagnir og verklag í því sambandi. Samþykkt að framkvæmdastjóri láti stjórn vita í þegar umsagnarbeiðnir berast og komi með tillögu um viðbrögð.


• Önnur mál.


o Stefnt að hafa næsta stjórnarfund á Kirkjubæjarklaustri mánudaginn 13. september kl. 13-15 þar sem m.a. yrði tekin afstaða til breytingartillagna á samþykktum jarðvangsins.


o Berglind kynnti hugmyndir um þrenns konar samstarf við fyrirtæki í jarðvanginum (samstarfsnet fyrirtækja, jarðvangsfyrirtæki, fyrirmyndarfyrirtæki). Stjórnin tók jákvætt í þessar hugmyndir.


Fleira ekki og fundi slitið kl. 15:02.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.