Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 21. Júní 2021

59. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í Kötlusetri, mánudaginn 21.6 2021 kl. 10-12.

Mætt: Lilja Einarsdóttir, Einar Freyr Elínarson í forföllum Þorbjargar, Eva Björk Harðardóttir, og
Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Björg Árnadóttir boðaði forföll. Einnig sat fundinn
framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind Sigmundsdóttir. Þá sat Jóhannes M. Jóhannesson
fræðslufulltrúi hluta fundarins.


Lilja Einarsdóttir formaður stjórnar setti fund, og gengið var til fyrirliggjandi dagskrár:

 Fundargerðir 56., 57. og 58. fundar voru staðfestar með undirritun.


 Berglind kynnti ítarlega greiningu á vinnuþörf vegna fyrirliggjandi verkefna jarðvangsins.


Tillaga um sex fasta stjórnarfundi á ári en jafnframt væri stofnað til fjögurra samráðsnefnda:


o Áfangastaðurinn Katla jarðvangur (jarðvætti, skipulagsmál ofl)
o Menningarmál
o Ferðaþjónusta, framleiðendur og markaðsmál
o Fræðsla og rannsóknir
Hugmyndin er að í samráðsnefndunum væri m.a. fólk sem væri nú þegar virkt í þessum
málaflokkum í sveitarfélögunum (meðfylgjandi greinargerð framkvæmdastjóra)
Jafnframt kynnti Berglind hugmynd um einhvers konar Hollvinafélag Kötlu jarðvangs, eins
konar bakvarðasveit, áhugamannafélag, sem mundi hugsanlega fá aðild að stjórn
jarðvangsins.
Stjórnarmenn sveitarfélaganna munu kynna þessar hugmyndir fyrir sínu baklandi og
samþykkt að þetta mál verði aftur á dagskrá næsta stjórnarfundar jarðvangsins.


 Berglind kynnti síðan hugmynd um skipurit jarðvangsins, m.a. með hliðsjón af ofangreindum
samráðsnefndum, ásamt drögum að starfslýsingum og fyrirliggjandi verkefnum
(framkvæmdastjóri, fræðslufulltrúi, markaðs- og kynningarfulltrúi, sérfræðingur jarðvætta og
skipulagsmála, „Branding“ verkefnisstjóri næstu 3-5 mán).


 Berglind fór síðan yfir uppfærða fjárhagsáætlun 2021 með hliðsjón af fyrrnefndum hugmyndum.
Stjórnin færði framkvæmdastjóra þakkir fyrir mjög vönduð og ítarleg gögn, og starfsmönnum fyrir
að hafa haldið út í ljósi hlutabótaleiðarinnar í fyrra. Samþykkt að framkvæmdastjóri hafi heimild
til að ráða í tímabundin störf á árinu í samræmi við fyrirliggjandi fjárhagsáætlun.


 Ríkisframlögin. Samningurinn frá 2017 rennur út nú í árslok. Formanni og framkvæmdastjóra falið
að leita eftir fundi með ráðherra sveitarstjórnarmála varðandi málið.


 Ungmennaráð hnattrænna UNESCO jarðvanga. Ákveðið hefur verið að stofna til ráðsins af hálfu
tengslanets hnattrænna jarðvanga (Global Geoparks Network), og mun tengslanetið fjármagna
ferð eins fulltrúa frá hverju jarðvangslandi á næstu UNESCO ráðstefnu hnattrænna jarðvanga þar
sem gengið verður frá stofnun Ungmennaráðs hnattrænna UNESCO jarðvanga. Stjórnin
samþykkir að stofna til Samráðsnefndar ungmenna Kötlu jarðvangs og beinir því til
sveitarfélaganna að tilnefna hvert einn fulltrúa (18-24 ára) úr ungmennaráðum viðkomandi
sveitarfélags, eigi síðar en föstudaginn 25. júní. Framkvæmdastjóra falið að vinna áfram að
málinu í samvinnu við stjórn og sveitarstjóra. Þá samþykkir stjórnin að taka þátt í kostnaði við að
senda viðbótarfulltrúa á ráðstefnuna með fyrirvara um mótframlag frá Reykjanes jarðvangi.


 Jóhannes fræðslufulltrúi kynnti stjórn hugmynd að verkefni um skrásetningu ferðaleiða, undir
hatti Ruritage verkefnisins. Hugsanlega væri hægt að vinna að þessu með t.d. fjármögnun frá
Vinnumálastofnun, Nýsköpunarsjóðs námsmanna eða sem lokaverkefni í háskólanámi, ýmist við
söfnun eða úrvinnslu gagnanna. Gæti varðað nám í fornleifafræði, sagnfræði, jarðfræði,
mannfræði, landfræði eða þjóðfræði.


 Væntanleg úttekt af hálfu UNESCO kynnt.


 Verkefnið Place branding. Huga þarf að fulltrúum til að vinna í því verkefni. Rætt um að
sveitarstjórnafulltrúum verði boðið til þátttöku, auk þess byggingarfulltrúum og fleiri aðilum.
Berglind mun senda frekari hugmyndir á stjórnarmenn í vikunni.


 Fastir fundartímar stjórnar. Ákveðið að miða við fjórða þriðjudag hvers mánaðar, en næsti fundur
þó 24. ágúst.


Fleira ekki og fundi slitið kl. 12:10.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.