Fundargerð - 20. September 2021
61. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í fjarfundi, mánudaginn 20.9 2021 kl. 14.
Mætt: Lilja Einarsdóttir, Þorbjörg Gísladóttir, Æsa Guðrúnardóttir, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind Sigmundsdóttir, og Jóhannes Marteinn Jóhannesson verkefnastjóri.
Lilja Einarsdóttir formaður stjórnar setti fund, og gengið var til fyrirliggjandi dagskrár:
• Fundargerð 60. fundar staðfest.
• Samþykktir Kötlu jarðvangs
Farið yfir fyrirliggjandi drög að breytingum á samþykktum jarðvangsins og vísað til síðari umræðu á næsta stjórnarfundi.
• Úttekt UNESCO framundan (18.-22. október)
Berglind kynnti drög að ítarlegri dagskrá heimsóknarinnar. Gert er ráð fyrir aðkomu heimamanna og sveitarfélaga á hverjum stað. Mikilvægt er að huga að sýnileika, fánum oþh. Stjórnin samþykkti drögin og færði starfsmönnum þakkir fyrir vandaða vinnu.
• Önnur mál
Branding (svæðismörkun) vinnustofan 5. október. Farið yfir drög að lista yfir væntanlega þátttakendur og var hann síðan samþykktur. Berglindi falið að senda fundarboð.
Stefnt að næsta stjórnarfundi þriðjudaginn 12. október kl. 9:30 til að fara yfir úttektina.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 15:59.