Fundargerð - 12. Október 2021
62. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í fjarfundi, þriðjudaginn 12.10 2021 kl. 09:30.
Mætt: Lilja Einarsdóttir, Þorbjörg Gísladóttir, Æsa Guðrúnardóttir, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind Sigmundsdóttir.
Lilja Einarsdóttir formaður stjórnar setti fund, og gengið var til dagskrár:
• Dagskrá úttektar frá UNESCO 18. – 22. október.
Farið yfir lokaútgáfu dagskrárinnar og hún staðfest. Framkvæmdastjóri minnir alla hluteigandi á að tryggja hjá sér og sínum sýnileikann þegar úttektaraðilarnir koma (fánar, merkingar, bæklingar oþh).
• Önnur mál
Á næsta stjórnarfundi (í nóvember) verður lokið við breytingar á samþykktum jarðvangsins og farið yfir drög að starfs- og rekstraráætlun 2022.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 10.