Fundargerð - 10. Júní 2021
58. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í fjarfundi, miðvikudaginn 10.6 2021 kl. 12-13:45.
Mætt: Lilja Einarsdóttir, Þorbjörg Gísladóttir, Björg Árnadóttir, Eva Björk Harðardóttir, og Sigurður
Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind
Sigmundsdóttir.
Fundargerðir 56. og 57. fundar voru staðfestar.
Ársreikningur 2020 var staðfestur með rafrænni áritun fyrir milligöngu KPMG. Sú breyting
hafði verið gerð frá þeim drögum sem rædd voru á síðasta fundi að jákvæðri rekstrarstöðu
var ráðstafað til almannaheilla og menningarstarfsemi og kemur því ekki til greiðslu tekjuskatts í því sambandi.
Lilja Einarsdóttir var kosinn formaður stjórnar í stað Antons Kára Halldórssonar.
Ákveðið að næsti fundur stjórnar verði mánudaginn 21. júní kl. 10.
Berglind kynnti svæðismörkunarverkefnið sem fékk styrk úr Sóknaráætlun Suðurlands 2021.
Rosanna Covacich og Rosanna Vitiello frá Place Bureau kynntu tillögur sínar um nálgun við
svæðismörkunarverkefnið.
Stjórnin samþykkti að ganga til samninga við Place Bureau. Stefnt er að fyrsta fundi þeirra með hagsmunaaðilum í byrjun september. Samþykkt að sveitarfélögin nýti sér ráðgjafaþjónustu SASS í sambandi við verkefnið.
Berglind mun koma með tillögu að fundaáætlun næsta vetrar á næsta stjórnarfundi.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 13:45.