Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 01. Júlí 2020

54. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn i fjarfundi Miðvikudaginn 01.07 2020 kl. 10.

54. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn í fjarfundi miðvikudaginn 1.7. 2020 kl. 10.


Mætt: Anton Kári Halldórsson, Eva Björk Harðardóttir, Björg Árnadóttir, Þorbjörg Gísladóttir og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins, Berglind Sigmundsdóttir.


Anton Kári, formaður stjórnar, setti fund en síðan var gengið til dagskrár:


1. Staðfest fundargerð 53. fundar


2. Stefnumótunarvinna Alta – Næstu skref


4.1 Merkingar og skilti. Anton Kári og Þorbjörg munu hafa forgöngu um gerð nýrra fána í samvinnu við Berglindi (5 nýir fánar pr sveitarfélag). Formaður lagði áherslu á að sveitarfélögin innleiddu strax sýnileika jarðvangsins á heimasíður sínar, kynningarefni, bréfsefni oþh. Stjórnin tók undir þetta.


4.2. Svæðismörkun og svæðismark – skýr sérstaða. Lykilhugtak varðandi sýnileika og fleira. Björg vakti ahygli á nýbirtri ferðamálastefnu Rangárþings eystra sem gæti hugsanlega nýst í þessu sambandi. Þorbjörg mun ræða við Völu um mögulega aðkomu hennar að vinnu af þessu tagi. Æskilegt væri að fá einnig tengilið úr Skaftárhreppi. Rætt um að vinna að þessu innan frá í byrjun.


4.3 Vöruþróun, ekki forgangsatriði núna, kemur í framhaldi af svæðismörkuninni.


4.4 Þemabundnar ferðaleiðir og áfangastaðir. Tilvalið samstarfsverkefni við Markaðsstofu Suðurlands. Þorbjörg benti á að í nýrri samgönguáætlun er t.d. gert ráð fyrir hjólaleiðum, mikilvægt að sveitarfélög jarðvangsins sýni þarna frumkvæði og flétti inn í sitt skipulag. Björg og Anton Kári muna skoða þessi mál nánar.


4.5 Jarðvangsfyrirtæki, ekki forgangsatrði í augnablikinu, koma inn nánar þegar mál hafa skýrst varðandi svæðismörkun o.fl.


4.6 Stjórnun og uppbygging innviða. Anton Kári bauðst til þess að vinna að því í sumar að vinna að úttekt á jarðvættum í Rangárþingi eystra, hann sendir skjal/sniðmát fyrir þessa upplýsingaöflun. Þorbjörg mun setja sig í samband við Völu varðandi jarðvætti í Mýrdalshreppi, hugsanlega mun Anton Kári geta aðstoðað við slíka úttekt í Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Þessi úttekt á jarðvættum ætti að nýtast til árangurs varðandi umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða í haust.


4.7 Fræðsla, eitt af meginverkefnum jarðvangsins. Alta leggur áhersu á að jarðvangurinn móti sér fræðslustefnu, ekki endilega að jarðvangurinn sjái um alla fræðsluna, en styrki t.d. kennara í starfi með fræðslu til þeirra. Minnst var á þann möguleika að fá fjármögnun frá Sóknarfæri ferðaþjónustunnar til að halda staðarleiðsögunámskeið í haust – fjármagn fékkst ekki úr þróunarsjóði framhaldsfræðslu. Berglind fundar með skólastjórum síðar í haust varðandi samstarf við skólana.


4.8 Aðkoma að rannsóknum. Ekki forgangsatriði núna en gæti t.d. tengst jarðvættunum.


4.9 Áætlun um samfélagstengsl. Verður unnið nánar í kjölfar vinnu við svæðismörkun.


4.10 Markaðssetning. Björg mun hafa frumkvæði að fundi með Dagnýju hjá Markaðsstofunni og Antoni Kára í ágúst til að fara yfir þessi mál. Heimasíðumál verða skoðuð í framhaldinu.


4.11 Skipulagsmál. Ákveðið að fá skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna á sameiginlegan fund sveitarstjórnanna í haust.Stefnt að sameiginlegum fundi sveitarstjórnanna þriggja með skipulagsfulltrúm kl. 16-18 þriðjudaginn 8. september með Alta. Anton Kári gerir texta í fundaboð og Þorbjörg lætur hanna auglýsinguna.


3. Starfsemi jarðvangsins á næstu misserum.
Báðir starfsmenn jarðvangsins eru á hlutabótaleiðinni og Hörður og Þuríður Helga hætt störfum. Búið er að ganga frá á Þorvaldseyri, en Anton Kári mun hafa milligöngu um að láta fjarlægja þar skilti oþh.

Fleira ekki og fundi slitið kl. 11:40

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.