Fundargerð - 27. nóvember 2018
44. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn á Þorvaldseyri þriðjudaginn 27.11. 2018 kl. 12
Mætt: Anton Kári Halldórsson, Eva Björk Harðardóttir, Þorbjörg Gísladóttir og Sigurður Sigursveinsson
sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn starfandi framkvæmdastjóri jarðvangsins Berglind
Sigmundsdóttir og Hörður Bjarni Harðarson verkefnastjóri
Anton Kári, formaður stjórnar, setti fund en síðan var gengið til dagskrár:
1. Fundargerð 43. fundar stjórnar Kötlu jarðvangs
Fundargerðin staðfest með undirritun.
2. Drög að fjárhagsáætlun 2019 og skipulag jarðvangsins næsta árið
Berglind fjallaði um stöðu jarðvangsins í sveitarfélögunum og ýmis álitamál í því sambandi.
Fór einnig yfir helstu verkefni líðandi árs með tillögu að forgangsröðun verkefna 2019. Loks
kynnti hún drög að fjárhagsáætlun 2019 fyrir óbreytta starfsemi og einnig drög að
kostnaðaráætlun fyrir að opna gestastofu á Þorvaldseyri. Berglind verður í framhaldinu í
sambandi við Margréti fjármálastjóra Rangárþings eystra, og stjórnarmenn jarðvangsins í
einstökum sveitarfélögum.
3. Fundur með jarðvangsfyrirtækjum – aðildargjöldin ákveðin (eða felld) + fulltrúi í stjórn
Ákveðið að gera tillögu um 12.000 kr á ári, a.m.k. fyrst um sinn.
4. Önnur mál:
· Hverfisfljót virkjunarumræður – framkvæmdasvæði er innan Kötlu jarðvangs. (óskað eftir viðtali við Kötlu jarðvang um áhrif virkjunar á ferðamennsku
og uppbyggingu svæðisins, nemendaverkefni í Háskóla Íslands á vegum Önnu Dóru
Sæþórsdóttur). Samþykkt að vísa þessu erindi til sveitarfélagsins.
· Volcanandpark – óskað eftir fulltrúi jarðvangsins í svæðisráð vegna skipulagningar á
fundi í maí 2019 (Ármann Höskuldsson)
Samþykkt að verða við því.
· Eldhraun – uppbygging innviða skv. landsáætlun, verkefni sem farið var af stað með
og hvar er það statt núna?
Málið verður skoðað.
· GeoSchools – óskað eftir aðkomu Kötlu v. samstarfsverkefni um Geóskóla (með
Geopark Ralsko og Magma Geopark)
Samþykkt.
· Cost verkefni – beiðni um þátttöku, varðar jöklafræðirannsóknir í 26 löndum
Samþykkt.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 13:30, og við tók fundur með samstarfsfyrirtækjum jarðvangsins.