Fundargerð - 25. júlí 2018
41. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Hvolsvelli miðvikudaginn 25.7. 2018 kl. 13.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Anton Kári Halldórsson og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.
Eva Björk Harðardóttir boðaði forföll. Einnig sótti fundinn starfandi framkvæmdastjóri jarðvangsins
Berglind Sigmundsdóttir fundinn og Hörður Bjarni Harðarson starfsmaður jarðvangsins.
Ásgeir setti fund en síðan var gengið til dagskrár:
1. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Ásgeir setur þennan fund sem starfandi sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Ákveðið að Anton Kári Halldórsson verði formaður, Eva Björk Harðardóttir varaformaður og jafnframt ritari, og sveitarstjóri Mýrdalshrepps gjaldkeri. Sigurður mun í samráði við stjórn undirbúa tillögu að breyttum samþykktum sem feli í sér fimm manna aðalstjórn og fimma manna varastjórn.
Stefnt verði að ársfundi í nóvember.
2. Þorvaldseyri – gestamóttaka jarðvangsins?
Ásgeir rifjaði upp forsögu málsins. Samþykkt að ganga til samninga við eigendur um leigu á
húsnæðinu frá 1. ágúst enda ábyrgist sveitarfélögin þann viðbótarkostnað til áramóta.
Stjórnin í samráði við starfsmenn mun nú þegar hefja undirbúning að opnun gestastofunnar.
3. Framtíðarskrifstofa jarðvangsins og skipulag starfseminnar.
Hingað til hefur skrifstofa jarðvangsins verið á Hvolsvelli en sl. vetur hefur hún verið í
Gunnarsholti vegna framkvæmda á Hvolsvelli. Nú liggur fyrir að jarðvangurinn getur fengið
inni í nýrri skrifstofuaðstöðu Rangárþings eystra á Hvolsvelli. Samþykkt að ganga til samninga
við sveitarfélagið um skrifstofuaðstöðu fyrir jarðvanginn á Hvolsvelli.
4. Yfirsýn yfir verkefni og fjármál jarðvangsins, Berglind og Hörður
Berglind lagði fram gögn úr bókhaldinu og er reksturinn nokkurn veginn í samræmi við
áætlun. Rætt um stöðu DMP skýrslunnar sem nú er í þýðingu. Gert er ráð fyrir að þýðingunni
ljúki nú í ágúst, og muni nýtast í endurskoðun aðalskipulags sveitarfélaganna. Hörður greindi frá sínum verkefnum, m.a. Horizon 2020 verkefninu Ruritage, og söfnun upplýsinga um einstök jarðvætti sem munu einnig nýtast í geoskólaverkefninu við upphaf skólaárs í ágúst. Ljóst að Ruritage verkefnið kallar á aukinn mannafla enda fylgja verkefninu
umtalsverðar tekjur. Hörður hefur einnig verið að vinna í að skapa tengsl við fyrirtæki á
svæðinu, bæði með símtölum og samtölum á vettvangi.
Berglind fór yfir sín verkefni, jarðvangshátíðin tók töluverðan tíma í vor hjá þeim báðum, Berglindi og Herði. Þau Hörður fóru í vikufund til Ítalíu í byrjun júni varðandi byrjun á Ruritage verkefninu og hún fór á vinnufund til Grænlands seinna í júní í geoVR verkefninu. Einnig verið að ljúka við frágang á skýrslugerð vegna 10 mkr styrks varðandi merkingar. Einnig verið að vinna við uppfærslu og endurbætur á heimasíðunni.
5. Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál jarðvangsins. Berglind og Hörður viku af fundi áður en þessi liður var tekinn til umræðu en Berglind kom svo aftur inn á fundinn í lok hans.
6. Önnur mál
Engin önnur mál.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 15:40.