Fundargerð - 15. mars 2018
39. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn í Kirkjubæjarstofu á Kirkjubæjarklaustri fimmtudaginn 15.3. 2018 kl. 10.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson.
Einnig sótti fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins Brynja Davíðsdóttir. Sigurður ritaði fundargerð.
Ásgeir sett fund. Brynja fór yfir helstu verkefni frá fyrra stjórnarfundi en síðan var gengið til fyrirliggjandi dagskrár.
1. Staðan nokkurn veginn skv. áætlun en hún fól í sér lítils háttar halla. Ljóst er að ekki er hægt að reikna með frekari fjárframlögum frá sveitarfélögunum á árinu. Mikilvægt er því að afla verkefnatekna til að fylla upp í það sem á vantar og gæta ítrasta aðhalds í rekstri.
2. 6 mánaða stöðuskýrsla Kötlu jarðvangs send til EGN: Sept2017-Mars2018
3. Verkefnin næstu vikna nokkurn veginn skv. aðgerðaráætlun. Stjórnin leggur almennt áherslu á
forgangsröðun verkefna. - Ákveðið hefur verið að „teygja á“ jarðvangsvikunni og er hún nú kynnt
sem Vorhátíð. Meðal nýmæla er Spóahátíð 12. maí og Skaftfellingshátíð 18. maí. Stefnt að fundi
með samstarfsfyrirtækjum á næstunni, einnig áframhaldandi vinnu að verkefnum með
geoskólunum. Einnig er gert ráð fyrir DMP kynningu í sveitarfélögunum.
4. Vernd og umsýsla jarðvætta. Svar barst frá Forsætisráðuneytinu varðandi ástandið við
Sólheimajökul og girðingamál/stjórnleysi á staðnum. Fundur sem haldinn var um málið skilaði
ekki árangri. Jarðvættið Sólheimajökull er í þjóðlendu en atvinnustarfsemin og vega- og stígagerðin hefur þróast án formlegra heimilda frá forsætisráðuneyti eða sveitarfélaginu. Óljóst með næstu skref.
5. Mögulegt samstarf við Þorvaldseyri varðandi starfs- og sýningaraðstöðu jarðvangsins. Rætt hefur
verið við eigendur staðarins sem hafa ákveðið að hætta rekstri gestastofunnar um að jarðvangurinn yfirtaki húsnæðið á staðnum og nýti sem miðstöð jarðvangsins við þjóðveginn enda er eitt meginhlutverk jarðvangsins kynningar- og upplýsingarstarfsemi, m.a. gagnvart skólahópum og almenningi. Stjórnin samþykkir að halda þessum viðræðum áfram og skoða þennan möguleika til hlítar en frestar endanlegri ákvörðun fram yfir næstu sveitarstjórnarkosningar.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 12.30.