Fundargerð - 13. febrúar 2018
38. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Lava Mathúsi á Hvolsvelli þriðjudaginn 13.2. 2018 kl. 12-14.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson.
Einnig sóttu fundinn starfsmenn jarðvangsins; Brynja Davíðsdóttir, Berglind Sigmundsdóttir og Hörður Bjarni Harðarson. Sigurður ritaði fundargerð.
Að loknum hádegisverði setti Ásgeir fund og gengið var til fyrirliggjandi dagskrár.
1 Stjórnin bókar ánægju sína með niðurstöður úttektarinnar sl. sumar, en hún tryggir áframhaldandi vottun jarðvangsins til 2021. Brynja fylgdi úr hlaði þeim athugasemdum sem fram komu við úttektina:
· Nota fimm ára fjármögnunina til að treysta jarðvanginn í sessi og starfsemi hans.
· Vinna áfram með stofnunum og öðrum aðilum til að takast á við hraðvaxandi ferðamannafjölda þannig að vinsælar náttúruperlur verði ekki fyrir varanlegum
skemmdum.
· Vinna áfram með jarðvangsfyrirtækjum að vöruþróun í ferðamennsku með gæði og sjálfbærni að leiðarljósi. Hvetja áfram til gæðahandverks sem byggir á náttúru- og menningararfi svæðisins.
· Ræða við ferðaþjónustuaðila um möguleika á að þróa viðburði eða samstarf um heimaframleiðslu og markaðssetningu hennar.
· Þróa samstarf milli geo-skólanna við skóla annars staðar. Nota vöktunarkerfi á svæðinu til fræðslu fyrir nemendur og íbúa.
· Halda áfram að þróa sterk tengsl jarðvangsins við háskóla og þróa aðferðir til að koma niðurstöðum rannsókna á framfæri við skóla og íbúa svæðisins.
· Halda áfram viðræðum við Vegagerðina um að koma UNESCO merki jarðvangsins fyrir á fleiri vegmerkingum.
· Koma á samstarfi við Náttúrufræðistofnun um varðveislu drumba úr Drumbabót.
· Auka þátttöku í samstarfsneti jarðvanga, bæði evrópskra og á heimsvísu, með áherslu á
kynningu alþjóðlegra mikilvægra jarðvætta svæðisins, undir hatti Hnattrænna jarðvanga UNESCO (UNESCO Global Geoparks).
2 Stjórnin samþykkti aðgerðaáætlun Kötlu jarðvangs 2017-2021.
3 Helstu verkefni framundan. Sundurliðuð aðgerðaráætlun 2018, undirrituð af samráðsnefnd
vegna styrksins frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Stjórnin samþykkir hana fyrir sitt
leyti.
4 Landsáætlun um uppbyggingu innviða – drög til umsagnar. Sveitarstjórnir munu taka málið
fyrir á sínum vettvangi, m.a. varðandi boðaða aukna áherslu á landvörslu. Spurning hvort jarðvangurinn vilji leita eftir því að fá fjármagn til landvörslu á sínum vegum og treysta þannig rekstrargrundvöll hans og sýnileika.
5 Rætt um kynningu á DMP jarðvangsins og tengslum við fyrirtæki (klasa). DMP skýrsla NOHNIK
er nú í þýðingu. Verður væntanlega tilbúið eftir 1-2 mánuði. Verður fyrst og fremst mál nýrra
sveitarstjórna að taka afstöðu til tillagna NOHNIK.
6 Önnur mál
· Berglind greindi frá stöðu fjármála. Þarf að ganga eftir greiðslum frá sveitarfélögum og ríkinu vegna ársins 2018.
· Búið að skrifa grein fyrir EGN Magazine
· Unnið við erlend samstarfsverkefni (Drifting apart, GeoVR, GeoMuseum, Ruritage)
· Kort af Suðurlandi í samstarfi við Markaðsstofuna á lokastigi
· Berglind búin að hafa samband við flest jarðvangsfyrirtækin
· Hörður greindi frá flokkun jarðvætta eftir sveitarfélögum, er einnig að vinna að samantekt um jarðvættin
· Búið að halda fund með Hvolsskóla, m.a. með SVÓT greiningu, Hörður er að vinna úr þeim gögnum (bæði frá starfsmönnum og nemendum)
· Stefnt að fundi í Víkurskóla á næstunni til að fara yfir málin með þeim
· Rætt um skipulag vinnu starfsmanna. Ákveðið að stefna að því að starfsmenn sendi stjórn framvinduskýrslu á ca tveggja tíma mánaða fresti, næst fyrir páska