Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 02. maí 2018

40. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs, haldinn á Hvolsvelli miðvikudaginn 2.5. 2018 kl. 10.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð.
Einnig sótti fundinn framkvæmdastjóri jarðvangsins Brynja Davíðsdóttir fundinn og Eva Björk Harðardóttir og Hörður Bjarni Harðarson voru í símasambandi. Berglind hafði boðað forföll.


Ásgeir setti fund en síðan var gengið til dagskrár:


· Formaður lýsti ánægju með fund starfsmanna jarðvangsins með fyrirtækjum á svæðinu á
Eyrarlandi, en þar var m.a. unnin SVÓT greining um samstarf fyrirtækjanna og jarðvangsins sem unnin var í kjölfar ítarlegrar og vandaðrar yfirferðar starfsmannanna um eðli og starfsemi jarðvangsins. Í samantekt voru helstu atriðin í SVÓT greiningunni dregin fram.


· Staða fjármála. Reksturinn virðist vera í jafnvægi en framlög enn ekki komin frá ríkinu.


· Brynja fór yfir verkefnastöðuna. Berglind og Hörður hafa lagt mikla vinnu í að setja upp dagskrá Vorhátíðar og taka þátt í viðburðum. Brynja var með innlegg á Skipulagsdegi Skaftárhrepps í apríl, og tók á móti stórum hópi nemenda HÍ í ferðamálafræði í Gunnarsholti.  Í fyrradag tók Brynja á móti rússneskum gestum sem eru að undibúa stofnun jarðvangs í Úralfjöllum. Fyrsti fundur í Ruritage verkefninu verður í Bologna í júní, Brynja og Hörður
sækja þann fund. Hörður búinn að ná fundi með Kolbrúnu Hjörleifsdóttur varðandi geoskólaverkefni skólans í Vík en það bíður haustsins að skilgreina það nánar. Hörður hefur verið í sambandi við Birnu skólastjóra Hvolsskóla varðandi verkefnis þess skóla, m.a. í kjölfar SVÓT greiningar sem unnin var í samvinnu skólans og jarðvangsins. Fram kom áhersla
stjórnarinnar á að geoskólaverkefninu yrði fylgt vel eftir strax í upphafi næsta skólaárs.


· Bifreiðamál. Búið að bæta við þriðja bílnum sem staðsettur er á Selfossi. Starfsmenn munu
halda akstursbók um allan akstur þessar bíla. Notaðir eru minni bílar en áður og stefnt að því að heildarkostnaður aukist ekki við að bæta við þriðja bílnum.


· Starfsmannamál. Formaður rifjaði upp þá stefnu jarðvangsins að starfsmenn hans yrðu búsettir innan jarðvangsins en skilningur hefur verið á því að þar sem skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði á svæðinu hefur ekki verið hægt að framfylgja þessari stefnu. Nú hillir undir breytingar á íbúðamarkaði. Þá skýrði formaður frá stefnu Mýrdalshrepps undanfarin ár um að háskólamenntaðir starfsmenn sveitarfélagsins fá helming leigu niðurgreiddan í tvö ár.


· Framtíðarskipulag starfseminnar.


o Í vetur hefur meginstarfsstöðin verið í Gunnarsholti vegna breytinga á húsnæði Rangárþings eystra en ekki raunhæft að svo verði áfram enda Gunnarsholt utan jarðvangsins. Skv. ákvörðun síðasta stjórnarfundar var ákveðið að fresta ákvörðun
um starfsstöð á Þorvaldseyri til næstu stjórnar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.


o Formaður velti upp því álitamáli hvort breyta ætti samþykktum jarðvangsins þannig að stjórnin væri ekki svo mjög bundin við önnum kafna sveitarstjóra/oddvita. Aðrir stjórnarmenn tóku undir þessi sjónarmið, m.a. með því að breikka hana, án þess þó að slíta sambandið við sveitarstjórnirnar. Fram komu hugmyndir um fimm manna stjórn og fimm manna varastjórn, hugsanlega með fagráðum, annars vegar á sviði náttúruverndar og hins vegar ferða- og markaðsmála. Minnst var á aðila eins og Markaðsstofuna, félög um náttúruvernd, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga o.fl.


o Ritara falið að leggja drög að stuttu minnisblaði fráfarandi stjórnar og verður gengið
frá því í samskiptum með tölvupósti.


Fleira ekki og fundi slitið kl. 11:30.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.