Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 27. Nóvember 2017

36. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 27. Nóvember kl. 10-12:20 á skrifstofu sveitarstjóra í Vík.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Björg Árnadóttir. Einnig
sat fundinn Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri, Berglind Sigmundsdóttir og Hörður Bjarni
Harðarson verkefnastjórar jarðvangsins ásamt Dagnýju H. Jóhannsdóttur framkvæmdastjóra
Markaðsstofu Suðurlands. Ásgeir lýsir ánægju sinni á fjölda starfsmanna Kötlu Jarðvangs, bauð alla
velkomna og setti fund.


1. Skipulag starfseminnar næstu mánuði


· Innlent samstarf/stofnanasamningar. Hákon Ásgeirsson og Uggi Ævarsson partur af þeim
hópi. Fundað tvisvar á Ári. Skýrsla væntanleg


· Samráðshópur vegna ríkisstyrks, áætlanir og skýrslugerð. Fyrsti fundur verður 28.
Nóvember


· Geoskólar – Hörður verður inni í þeirri vinnu. Mikill áhugi er meðal jarðvanga í Evrópu á sama fyrirkomulagi. Geoeducation hópur innan EGN.

· DMP – NOHNIK og samvinna við markaðsstofu. Dagný fór yfir starfið sem markaðsstofa
vinnur að. Ekki um mikla skörun við jarðvanginn á þeirra starfi er virðist og rætt hvernig
best hentar að koma jarðvanginum betur fyrir í þeirra kynningum. Jarðvangurinn er ekki að
stunda beinar kynningar, auglýsingar eða markaðsstarfsemi sem stendur.


· Almenn yfirsýn yfir starfssemi jarðvangsins og erlend samstarfsverkefni.


Innleiðing nýrra starfsmanna:


Berglind:
· Fjármál, samskipti við bókara - rekstaráætlun í bígerð


· Markaðsmál


o Markaðsstofan – samstarf og fundarþátttaka


o Jarðvangsfyrirtæki – klasasamstarf


· Drifting apart og GeoVR/GeoMuseum (með Brynju)


· Fræðsluefnisgerð: heimasíða, geoskólar ofl.


Hörður:
· Yfirferð á verndarstöðu jarðvætta


· Frekari vinna varðandi hvert jarðvætti fyrir sig – í framhaldi af management plan


· Sterk aðkoma að geoskólum


· Ruritage (með Brynju). Sigurður Sigursveinsson mun leiða Hörð inn í það verkefni.


· Yfirfara stöðu heimasíðu


SKILTI


· Þarf að fá á hreint verkferla varðandi uppsetningu á skiltum. Sýnileiki krafa frá jarðvangi.


Samkomulag þarf til að eyða árekstrum. Minnka þarf skörun og vinna að því að samhæfa verkefni.


Ásgeir nefnir gerð göngustíga/bílastæði út á vita. Háey skipulag og umhverfisstofnun.

Umhverfisstofnun nefnd til að mögulega taka yfir svæðið, nefnir að fá jarðvanginn inn í þá
vinnu og samtal þar á milli.

SAMSTARF:

· Ásgeir nefnir að peningar sem Katla fær í framkvæmdir ofl. eigi að fara í atriði á vegum
jarðvangs frekar en minjastofnunar, náttúruminjastofnunar eða Vatnajökulsþjóðgarðs.

· Berglind & Hörður – Geoskólar - fundur með Hvolsskóla 28.nóvember, finna fundardag
með Víkurskóla fljótlega. Áframhaldandi vinna sem kemur í ljós á næstu vikum. Vinna að
Drifting Apart sem Berglind heldur utan um. Ruritage umsókn – Situr í biðstöðu þar til
endanlegt svar við umsókn liggur fyrir. Sigurður mun leiða Hörð inn í þá vinnu og mun hann
halda utan um það í framhaldi.

SÝNILEIKI

· Byrja að auka sýnileika Jarðvangs og starfsmanna inni á svæðinu. Ná betri tökum á tíma
sem fer í erlend samstarfsverkefni. Auka sýnileika í skólum, hjá samstarfsaðilum, í feltinu.

· Jarðvangsfyrirtæki.
Taka fund með þeim. Fá fulltrúa/formann til að mæta reglulega á fund jafnvel. Hvað fá þau
í sinn bauk fyrir þáttöku?
Við þurfum að vera „sýnilega“ að vinna að þessum málum

2. Drög að rekstraráætlun - Berglind
· Berglind tók saman drög að rekstraráætlun og kynnti fyrir stjórninni. Vöntun er á rekstrarfé
m.v. árleg útgjöld. Ásgeir ræðir á fundi að ekki sé hægt að reikna með að sveitarfélögin
leggi meira fé til reksturs, heldur brúa þurfi bilið með tekjum af styrkjum og verkefnum.
Hann nefnir einnig að ólíklegt sé að jarðvangsfyrirtæki komi til að leggja stórfé til rekstrar
jarðvangsins.

· Ræddar tekjuöflunarleiðir – verslun í Þorvaldseyri/upplýsingamiðstöð jarðvangs. Sala á
bæklingum og/eða ferðum, skoða kaup og rekstur bifreiðar, samanburður mv. bílaleigu.

· Þættir sem snúa að stefnumótun ferðaþjónustu fyrir landið allt hafa ekki verið kláraðir.
Heildarsýn ferðaþjónustu fyrir landið í heild er ekki til.
Snert var á stefnu og afstöðu varðandi gjaldtöku á ferðamönnum (bílastæðagjöld, tollar,
klósettgjald, komugjald til landsins)

o Aðgangur að þjóðlendum (landeigendur, sveitarfélög. Hvaða stöðu hefur hvor fyrir
sig gagnvart þjóðlendum?)

o Vatnajökulsþjóðgarður ( Lög þar um gjaldtöku – þjóðgarður)

3. Hlutverk jarðvangsins innan sveitarfélaganna varðandi jarðvætti

· Hörður mun taka saman yfirlit um verndarstöðu jarðvætta fyrir næsta fund. Í framhaldinu
verður tekin afstaða til þeirra mála. Sjónarmið Ásgeirs að öll sú vinna færist yfir á jarðvanginn í framtíðinni.

4. Klasasamstarf innan jarðvangsins
· Staðan er óljós hjá Friði og frumkröftum og fór Eva yfir þau mál og ætlar í framhaldinu að
heyra í þeim. Ákv tekin á stjórnarfundi hjá þeim að segja upp samstarfi, ekki víst hvort það
gildi. Mikil óvissa sem þarf að taka á. Verkefnið þarf tíma, mikilvægt að leyfa þessu að
þróast. Verið er að stofna klasa á Hvolsvelli og því ótímabært að ræða breytingar.

· Hugmynd að leggja niður Visit vík, færa það inn í jarðvanginn.

· Fyrirtæki þurfa að uppfylla kröfur í samstarfi við jarðvanginn. Verðmæti þess að nýta merki
UNESCO á heimsvísu. Fyrirtæki verða fulltrúar jarðvangins. Hvað gera þau og hvað fá þau í
staðin. Móta þarf skýra stefnu í þessum málum; alhliða samstarf um upplýsingagjöf,
vinnuframlag, uppbyggingu. Að vilja gefa af sér.

5. Önnur mál: Gestastofan Þorvaldseyri / Þekkingarsetur Klaustri
100 ára Kötluafmæli

· Eigendur Þorvaldseyri ræða yfirtöku á starfseminni. Taka þarf fund með öllum aðilum. Vilja
losa sig við götumenninguna á sýningunni og fá þetta inn í meira persónulegt umhverfi og
fá fólk með raunverulegan áhuga. Eru með handverk og minjasafn heima hjá sér. Mörg
tækifæri í boði.

· Þekkingarsetur Klaustri. Rætt sem möguleg aðstaða fyrir Kötlu Geopark.

· 100 ára Kötluafmæli (Regnbogahátíð). Jarðvangsverkefni. Gera kröfu um að allt þetta
tengist okkar jarðvangi. Bera heiti jarðvangsins. Sterk tenging.


Fleira var ekki og fundi slitið 12:20

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.