Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 24. júlí 2017

34. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 24. júlí 2017 kl. 10-10:45, símafundur.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem
ritaði fundargerð. Auk þess tók Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri þátt í fundinum.


Meginverkefni fundarins var að fara yfir fyrirliggjandi dagskrá vegna úttektarinnar framundan, en
úttektaraðilarnir koma til landsins á morgun. Brynja fór yfir dagskrána en tekist hefur að bregðast við nær
öllum þeirra 17 athugasemda sem gerðar voru við úttektina 2015. Ásgeir formaður lýsti yfir ánægju sinni við undirbúning úttektarinnar og tóku aðrir stjórnarmenn undir það. Brynja, Sigurður og Hörður munu verða með úttektaraðilunum en auk þess koma ýmsir aðrir að verkefninu, m.a. aðrir stjórnarmenn.


Þá var rætt stuttlega um samantekt Sigurðar varðandi mögulegan fund/ráðstefnu European Geoparks
Network í Kötlu jarðvangi en gert er ráð fyrir að slíkur fundur/ráðstefna sé haldinn innan tíu ára frá inngöngu
í netverkið. Samþykkt að skoða nánar með fund i Kötlu jarðvangi í mars 2021, einnig kæmi til greina fundur í september 2021 en hæpið að nægileg fundaraðstaða sé til staðar í jarðvanginum fyrir ráðstefnuna í kjölfar september fundarins.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.