Fundargerð - 18. janúar 2017
Stjórnarfundur Kötlu Jarðvangs haldinn í Hvolnum miðvikudaginn 18. janúar 2017
Mættir: Ásgeir, Ísólfur Gylfi, Eva Björk og Brynja. Einnig er Árný Lára á fundinum en Þórdís í Vík og
Þorbjörg eru á Skype.
Ásgeir setur fund kl 14:30 og bíður fundarmenn velkomna.
a) Farið yfir undirritaðan ársreikning ( ath. Vantar lykiltölur).
b) Mönnun – verkefni jarðvangsins 2017.
Rætt um að skoða með að ráða markaðsmanneskju til viðbótar. Ákveðið að auglýsa eftir
starfsmanni fyrir jarðvanginn, Duglegum einstaklingi sem er tilbúinn að vinna að málefnum
jarðvangsins. Ákveðið að fela Árný Láru og Ásgeir í samvinnu við Brynju að auglýsa eftir
starfsmanni.
c) Staða gagna vegna Revalidation 2017.
Búið að fylla út gögn 8,9 . doc A og doc B 8 stig
Búið að skrifa sjálfsmats skýrslu sem útskýrir stöðuna. Gögnin fara frá jarðvanginum til
Menntamálaráðuneytisins fyrir mánaðarmót næstu. Uppfylla þarf og svara þeim atriðum
sem við fengum rauða spjaldið fyrir. Skila þarf fyrir miðjan maí.
Brynja fer yfir atriði sem koma inn á kostnaðarliði á þessu ári 2017 á Fjárhagsáætlun þessa árs.
-EGN fundur á Írlandi
Brynja og Árný kynntu merkt skrifstofugögn( möppur o.fl.) sem yrðu merkt sveitarfélögunum til að
afhenda þegar gesti ber að garði. Verð ca. 200 þús fyrir 100 stk.
4 )Árný kynnti samstarf með Markaðsstofunni í að útbúa kort fyrir jarðvanginn í samvinnu við
NOHNIK.
Ákveðið að taka tilboðinu.
Kostnaðurinn af slíkri samvinnu yrði 200 þúsund krónur sem myndi renna til Nohnik.
Brynja kynnir hugmyndir að fatnaði merktan Kötlu Jarðvangi. Kostnaður á sérstaklega merktum
bolum ca 2000 kr stykkið.
3) Management Plan
Brynja kynnir „management plan“ sem jarðvanginum er skylt að hafa. Slíkt plan kostar kr 2,5 milljónir
hjá NOHNIK. Rætt og ákveðið að taka tilboðinu. Nauðsynlegt að kaupa einnig þýðingarvinnu eða fá
styrk fyrir henni. Einnig rætt um framsetningu til að vinnan nýtist sveitarfélögunum sem best.
Ákveðið að þýða úrdrátt á tilboðinu frá Nohnik og leggja það fyrir sveitarstjórnir.
5)Uppfæra heimsíðu- Rætt um heimasíðu Kötlu Jarðvangs og þörf á uppfærslu á henni. Þórdís er
búin að vera að sinna henni.
6) Rætt um útgáfa rits um öll jarðvætti og tengingu milli þeirra. Ath með að sækja um styrk til að
vinna rit sem myndi tengja“ geosites“ við sögu og jarðfræði svæðisins. Skoða hvort SASS gæti auglýst
slíkt verkefni sem háskólanemendur myndu síðan vinna að. Verkefnið heitir atvinnuskapandi
nemendaverkefni á vegum SASS.
7. ) Vernd / Uppbygging. Gæti tengst NOHNIK vinnunni.
8) Brynja segir frá stöðu á Alþjóðlegum samvinnuverkefnum .
*Drifting apart verkefnið - Skoða þarf endurgreiðslu á útlögðum kostnaði , verkefninu lýkur 2018.
Verið er að vinna kennsluefni í skólana, sjónræna sýningu.
*Geo VR er sýndarveruleiki sem fellur að Drifting apart verkefninu og verður hægt að setja á höfuðið
og skoða jarðvanginn ofan frá.
9) Geo skólar. Styrkurinn hálfnaður og verkefnið er hálfnað. Kennsluefnið er í vinnslu. Verið að bæta
við aðferðafræði við útikennslu. Búið að greiða út 800 þúsund. Eftir er að fara inn í skólana og koma kennurum inn í efnið. Ákveðið að klára verkefnið fyrir vorið.
10)Skiltamál – Styrkur ókláraður. Verkefni ólokið.
Fleira ekki rætt
Fundi slitið kl 16:00