Fundargerð - 13. Desember 2017
36. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 27. Nóvember kl. 10-12:20 á skrifstofu sveitarstjóra í Vík.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason og Sigurður Sigursveinsson. Eva Björk Harðardóttir.
Einnig sóttu fundinn starfsmenn jarðvangsins; Brynja Davíðsdóttir, Berglind Sigmundsdóttir og Hörður Bjarni Harðarson. Sigurður og Hörður Bjarni rituðu fundargerð.
Ásgeir setti fund, fram var haldið umfjöllun um efni frá síðasta fundi.
· Vernd jarðvætta (geosites). Hörður lagði fram yfirlit um stöðu verndunar á einstökum
svæðum. Rætt um hlutverk jarðvangsins og starfsmanna hans í þessu sambandi. Flækjustig á
hverjum stað er mismunandi, t.d. varðandi Seljalandsfoss, Skógafoss, Dyrhólaey og Þórsmörk,
m.a. með tilliti til skipulagsmála. Yfirlitið verður unnið áfram af starfsmönnum jarðvangsins.
· Destination Management Plan frá NOHNIK. Ákveðið að leita tilboða í prentun 30 eintaka en
jafnframt að fá tilboð í þýðingu yfir á íslensku.
· Framkvæmdaáætlun (Action Plan). Brynja fylgdi henni úr hlaði, tekur til fjögurra ára (sbr.
vottunarferli jarðvangsins). Vinna þarf áætlunina áfram, m.a. með tilliti til áherslnanna frá
NOHNIK.
· 100 ára afmæli Kötlugossins 1918. Ásgeir greindi frá því að málið hefði verið rætt í stjórn Kötluseturs og einnig hefur verið fundað með aðilum frá HÍ, Veðurstofunni og fleirum úr vísindasamfélaginu. Föstudagurinn 12. október (gosdagurinn) verður helgaður ráðstefnu í þessu sambandi en þessa helgi er jafnframt haldin Regnbogahátíðin í Vík. Stjórnin sammála um að ráðstefnan verði sem mest undir hatti jarðvangsins, og áherslan verði á fræðslu fyrir
almenning.
· Rætt um skrifstofumál jarðvangsins. Ísólfur greindi frá því að gert er ráð fyrir að nýtt skrifstofuhúsnæði á Hvolsvelli verði tilbúið í apríl, þar sem m.a. skipulagsfulltrúinn verður með aðstöðu. Þar væri heppileg skrifstofuaðstaða fyrir jarðvanginn.
· Rætt um mögulega gestastofu á Þorvaldseyri. Formanni og Sigurði falið að ræða við hjónin á
Þorvaldseyri, líklega á mánudag eða fimmtudag.
· Í umræðu um starfsstöð(var) jarðvangsins kom fram hjá Herði Bjarna að hann væri að líta eftir íbúðarhúsnæði, helst miðvæðis í jarðvangnum, t.d. í Vík.
· Rætt um verkaskiptingu/starfssvið jarðvangsins, staðbundinna klasa og Markaðsstofu
Suðurlands. Að mati fundarmanna er ekki mikil skörun á hlutverkum þessara aðila en mikilvægt að málefnum Katla UNESCO Global Geopark sé haldið til haga í kynningarstarfi Markaðsstofunnar. Ekki sjálfgefið að öll fyrirtæki einstakra klasa uppfylli skilyrði fyrir samstarfsfyrirtæki jarðvangsins.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 12:02.