Fundargerð - 11. október 2017
35. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 11. október 2017 kl. 09:30-11:00 á Hvolsvelli
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir (í síma) og Sigurður Sigursveinsson
sem ritaði fundargerð. Auk þess tók Berglind Sigmundsdóttir verkefnastjóri þátt í fundinum.
Dagskrá:
1. Ársreikningur jarðvangsins fyrir 2016. Stjórnin staðfesti ársreikninginn.
2. Undirbúningur að rekstraráætlun fyrir næsta ár.
a. Framlag sveitarfélaganna. Núverandi framlag er 12 mkr. Samþykkt að beina því til sveitarfélaganna að miða við 14 mkr á árinu 2018. Hlutur Rangárþings eystra væri þá 7 mkr, en 3,5 mkr hjá hvoru hinna sveitarfélaganna, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi.
b. Nýting á framlagi ríkisins – gera þarf greinargerð um nýtingu fjárins 2017 og áætlun um
nýtingu fjárs 2018.
c. Aðkoma fyrirtækja og/eða stofnana að jarðvanginum, skuldbindingar og greiðslur í því
sambandi. Málið rætt. Forsendur hafa að einhverju leyti breyst með tilkomu fjárstuðnings frá
ríkinu. Samþykkt að stefna að fundi með jarðvangsfyrirtækjum og öðrum áhugasömum
fyrirtækjum fyrir áramót.
3. Umræður um samþykktir félagsins varðandi stjórn og félagsaðild. Samþykkt að fulltrúi
samstarfsfyrirtækjanna í varastjórn verði kosinn á fyrrgreindum fundi
4. Umræður um aðkomu samsamráðshóps ráðuneytisins að jarðvanginum í samræmi við ákvæði í samningnum
a. „Til að tryggja samræmingu verkefna, eftirfylgni og framgang verkefnisins um Kötlu jarðvang
skipar umhverfis- og auðlindaráðuneytið samráðshóp með fulltrúum fjögurra aðila,
Umhverfisstofnunar, Vatnajökulsþjóðgarðs og Minjastofnunar, ásamt fulltrúa Kötlu
jarðvangs sem er formaður starfshópsins.“
Stjórnin samþykkir að framkvæmdastjóri jarðvangsins verði fulltrúi hans í starfshópnum.
Önnur mál
Sigurður dreifði upplýsingum um stærðir jarðfræðilegra heilda norðan og vestan jarðvangsins.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 11.