Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 11. apríl 2017

31. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 11. apríl 2017 kl. 16-18:45 Í Hvolnum á Hvolsvelli.

Mætt: Ásgeir Magnússon Lilja Einarsdóttir (í forföllum Ísólfs Gylfa), Eva Björk Harðardóttir og Sigurður
Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess sat Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri fundinn og
tengiliðirnir Beata Rukowska og Árný Lára Karvelsdóttir, en Þorbjörg Ása Jónsdóttir var í Skype sambandi.


Ásgeir formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund.


· Styrkjamál jarðvangsins
Verkefnin Geoskólar og Geosaga fengu styrki frá SASS og mennta- og menningarmálaráðuneytinu og er þeim nú lokið. Tvær umsóknir til SASS nú í mars fengu ekki framgang, önnur varðandi sýnileika og hin varðandi framhald á verkefninu Geosaga.


· Samstarf
Nýlokið er marsfundi European Geoparks Network sem haldinn var á Írlandi. Þar var m.a. kynnt tvíreykt
Tindfjallahangikjet sem SS lagði til og féll það mjög að bragðlaukum viðstaddra. Stöðuskýrslum var skilað til
EGN (European Geoparks Network) og GGN (Global Geoparks Network). Norrænir jarðvangar hafa tekið upp samstarf sín á milli, fundur í Keflavík í febrúar og heimsókn til Kötlu jarðvangs. Framkvæmdastjóri fór á
námskeið í Skotlandi um stígagerð í boði Landgræðslunnar í beinu framhaldi af fundinum á Írlandi. Gerður hefur verið Geoskóla samstarfssamningur við Hvolsskóla og stefnt er að slíkum samningum við hina grunnskólana tvo í jarðvanginum. Framkvæmdastjóri hefur fundað með ferðamálaklösunum Friði og frumkröftum og VisitVík varðandi mögulega aðkomu fyrirtækja þeirra að jarðvangnum. Þorbjörg Ása hefur umsjón með gerð samstarfssamninga við fyrirtæki í jarðvanginum og hafa 10 fyrirtæki staðfest þátttöku sína
hvað þetta varðar. Þá hefur verið gerður samstarfssamningur við Umhverfisstofnun um fræðslu og sýnileika á verndarsvæðum. Þá hefur verið fundað með Jónasi í Safe Travel varðandi öryggisskilti við Sólheimajökul.

Einnig með Vatnajökulsþjóðgarði varðandi mögulega tilnefningu þjóðgarðsins til Heimsminjaskrár UNESCO.
Þá kom fram að láðst hafði að boða framkvæmdastjóra á skipulagsdag í Skaftárhreppi og var beðist velvirðingar á því.


· Náttúruvernd
Staðir á náttúruminjaskrá í jarðvangnum eru sumir undir vaxandi álagi vegna ferðamanna, t.d. Fjaðrárgljufur og Kvernugil. Rætt um friðlýsingu sem mögulega leið til að vernda staði undir álagi.


· Sýnileiki og markaðssetning
Búið að útbúa möppur og skrifblokkir merktar jarðvangnum (og UNESCO). Gerðir hafa verið fánar með UNESCO merkinu fyrir sveitarfélögin og skólana. Ákveðið að kaupa 10 pör af borðfánum fyrir hvert
sveitarfélag. Einnig eru í prentun skilti fyrir upplýsingamiðstöðvar. Þá verður nýr „flyer“ magnprentaður.


Árný kynnti gerð nýrra skilta, sem m.a. hafa verið hönnuð í samstarfi við Umhverfisstofnun. Þeim verður
komið upp á fjölmörgum stöðum fyrir úttektina í sumar, ásamt límmiðum á núverandi fræðsluskilti.
Vegagerðin ætlar að koma upp aðkomuskiltum við jarðvangsmörkin. Árný hefur sömuleiðis haft umsjón með ferðamannkorti miðsvæðis Suðurlands/jarðvangsins í samvinnu við Markaðsstofuna, mikilvægt er að textar á
bakhlið kortsins taki mið af sérstöðu viðkomandi staða sem jarðvættum (geosites). 3. tölublað fréttabréfs
jarðvangsins kemur út eftir páska. Prenta þarf nýtt upplag af bæklingnum Dynamic destination og um
Klaustursstíginn, bæði á ensku og íslensku.
Jarðvangsvika verður smærri í sniðum en stundum áður, en samt með nokkrum viðburðum, m.a. hlaupinu í Hjörleifshöfða.

GeoSaga sýning í Kötlusetri er í vinnslu, en ekki fékkst styrkur til hennar hjá SASS. Reynt verður að nýta annað
fyrirliggjandi fjármagn. Uppfæra þarf heimasíðu jarðvangsins þannig að m.a. verði auðvelt að vísa í hana af heimasíðu Markaðsstofunnar, endurskoða þarf kort og texta, m.a. til að nýta á Lava Center á Hvolsvelli.


Halda þarf kynningu fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva jarðvangsins og útvega því sérmerktan fatnað.


Einnig að koma upp jarðvangshornum, t.d. á söfnum og upplýsingamiðstöðvum.


· Verkefnisstjóri hjá Kötlu jarðvangi
Farið var yfir drög að auglýsingu og þau afgreidd til birtingar.


· Fundur með Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu vegna fjárframlags ríkisins Ásgeir gerði grein fyrir fundinum sem haldinn var í gærmorgun en reiknað er með að gerður verði samningur fljótlega við ráðuneytið um ráðstöfun fjárins.


· Áfangastaðaáætlun – Management plan
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir heimsóknum NOHNIK í vor og haust til að vinna í málinu. Gert er ráð fyrir hálfs dags vinnufundum með fulltrúum sveitarfélaga, landeigenda og ferðaþjónustuaðila föstud. 5. maí kl. 13 í Hvolnum, miðvikudag. 14. júní kl. 12 í Vík og miðvikud. 30. ágúst kl. 12 á Kirkjubæjarklaustri. Ráðnir hafa verið tveir verkefnisstjórar til Markaðsstofunnar til að sinna DMP málum á Suðurlandi, Árný Lára
er tengiliður jarðvangsins í þeirri vinnu.

· Önnur mál
Fjölgun í stjórn. Eva Björk viðraði hugmyndina, núverandi stjórnarmenn mjög önnum kafnir og oft hefur þurft að fresta fundum vegna þessa. Rifjað var upp að í núverandi samþykktum eru þrír í aðalstjórn þar sem hver og einn er fulltrúi tveggja aðila, sveitarfélags og safns/seturs. Síðan eru tveir varamenn, annar frá HfSu/HÍ en
hinn frá fulltrúum ferðaþjónustunnar, en sá síðarnefndi hefur ekki enn verið skipaður. Málið rætt.

Eva Björk greindi frá viðhorfum ferðaþjónustuaðila í ferðaþjónustuklasanum Friði og frumkröftum í
Skaftárhreppi um að smám saman taki jarðvangurinn yfir verkefni klasans enda fylgi núverandi fjármögnun
inn í jarðvanginn í skrefum. Fimm fyrirtæki á svæðinu hafa þegar gert samning við jarðvanginn. Málið rætt
ítarlega og ákveðið að halda þeirri umræðu áfram, líka gagnvart ferðaþjónustunni í hinum sveitarfélögunum
tveimur.


Rætt um breytingu á skrifstofuaðstöðu framkvæmdastjóra.


Fleira ekki og fundi slitið kl. 18:45

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.