Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 17. nóvember 2016

29. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 17. nóvember 2016 kl. 10-12:15 á skrifstofu sveitarstjóra á Hvolsvelli.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð en Eva
Björk Harðardóttir var í símasambandi. Auk þess sat Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri fundinn. Ásgeir
formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund.


· Ásgeir kynnti tölvupóst frá framkvæmdastjóra 28.10. 2016 um áunnið en ótekið orlof. Málið rætt.


· Rekstur jarðvangsins á næsta ári. Fyrir liggur fyrirheit forsætisráðherra í umboði ríkisstjórnarinnar
um 20 mkr árlega fjárveitingu næstu fimm árin. Jafnframt er gert ráð fyrir að sveitarfélögin leggi 10
mkr til verkefnisins árlega. Þessi fjármögnun gerir kleift að ráða a.m.k. einn annan starfsmann. Rætt
um að hann þurfi að vera jarðfræðingur og geti jafnframt verið staðgengill framkvæmdastjóra auk
þess að geta sinnt fjölbreyttum verkefnum. Starfsstöð hans verði innan jarðvangsins.


· Sigurður greindi frá ákvörðun stjórnar HfSu um áframhaldandi stuðning við jarðvanginn, en á fundi
stjórnarinnar 27.10.2016 var eftirfarandi bókað:


o Málefni Kötlu jarðvangs og aðkoma HfSu að þeim.
Stjórn félagsins býður stjórn Kötlu jarðvangs að félagið fjármagni áfram á næsta ári kostnað
við að starfsmaður félagsins sæki samstarfsfundi jarðvangsins erlendis.


Stjórn Jarðvangsins þakka mikilvægan stuðning Háskólafélagsins við uppbyggingu Jarðvangsins og
góðan skilning á því að framkvæmdastjóri Háskólafélagsins sinni áfram nauðsynlegum erlendum
samskiptum hans með framkvæmdastjóra.

· Farið var yfir rekstrarstöðu jarðvangsins. Sveitarfélögin munu þurfa að greiða 4 mkr til viðbótar á árinu til að ná endum saman. Samþykkt var að stjórnarmenn leggi fyrir sveitarstjórnirnar beiðni um
hækkun á framlagi til Jarðvangsins um samtals 4 milljónir á þessu ári.

· Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu mála varðandi það að koma á móts við athugasemdir úttektaraðila
sl. sumar. Framkvæmdastjóri hefur unnið að þessum verkefnum m.a. í samvinnu við tengiliðina í
sveitarfélögnum þremur. Auk þessara atriða þarf að fylla út svokallaða sjálfsmatsramma (Excel skjöl)
varðandi úttektina á næsta ári. Vegna breytts fyrirkomulags í sambandi við jarðvangaskrá UNESCO
þarf helst að ljúka þessum verkefnum fyrir áramótin. Sigurður benti á þann möguleika að nota
fjarfundarbúnað til þessarar vinnu til að tíminn nýtist betur. Stefnt að því að fyrsta lotan í þessari
vinnu verði í lok mánaðarins og mun Sigurður boða til hans í samráði við framkvæmdastjóra og
tengiliðina.


Fleira ekki og fundi slitið kl. 12:15.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.