Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 13. September 2016

28. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 13. september 2016 kl. 11-14 í Kirkjubæjarstofu.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Eva Björk Harðardóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Auk þess Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri.


Ásgeir formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund.


Mál til afgreiðslu
1. Afgreidd verkefni frá síðasta fundi


· Brynja greindi frá Katla Geopark Progress Report sem send hefur verið til Global Geoparks
Network, en þar er um reglubundna skýrslugjöf að ræða um starfsemi jarðvanganna.


· Ánægja með sameiginlega umsókn sveitarfélaganna til Sambands íslenskra sveitarfélaga.


· Heimsókn hollensku ráðgjafanna sem hafa unnið að verkefni fyrir Skaftárhrepp í samvinnu við HÍ. Almenn ánægja með hugmyndafræði þeirra og áhugi innan stjórnar að útvíkka það til hinna sveitarfélaganna tveggja. Samþykkt að Brynja fylgi málinu eftir hjá Stjórnstöð ferðamála.


· Brynja greindi frá nýju erlendu samstarfsverkefni á vettvangi NORA sem styrkir m.a. gerð
gestastofusýningar, tengist öðru verkefni, Drifting apart, á vettvangi Norðurslóðaáætlunar
Evrópusambandsins. Ekki er um fjárútlát að ræða í þessu sambandi, einungis vinnuframlag.


2. Verkefni í vinnslu og til afgreiðslu stjórnar


· Samskipti við Vegagerðina varðandi merkingar. Mikilvægt mál varðandi sýnileika jarðvangsins og kröfur UNESCO Global Geoparks. Brynja hefur sent kvörtun til ráðuneytisins vegna þess að Vegagerðin virðist nú ekki tilbúin að leyfa merkingar í þessu sambandi þrátt fyrir að hafa leyft þær hingað til. Ákveðið að formaður fylgi málinu eftir við Vegagerðina.

· Merkingar varðandi umgengni við náttúru. Hollensku aðilarnir hafa unnið tillögur að
merkingum. Samþykkt að kaupa þá vinnu af þeim og nýta hringlaga formin, án rauðs litar.
10 mkr styrkurinn frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða mun fjármagna framleiðslu og
uppsetningu skiltanna. Brynja mun vera í samráði við tengiliðina um málið og ráðfæra sig við
Þorstein Jónsson.


· Friðunarmálefni. Brynja hefur sent erindi til Skaftárhrepps vegna Landbrotshóla og til
Mýrdalshrepps vegna Reynisfjöru, en jarðvanginum ber að vinna að ábyrgri umgengni við
merkar jarðminjar.


· Brynja hefur sent greint til birtingar í European Geoparks Network Magazine um mælingar á
hopun Sólheimajökuls á vegum Hvolsskóla og Háskóla Íslands.


· Undirritað var samkomulag milli sveitarfélaganna þriggja og jarðvangsins um samvinnu
varðandi skipulagsmál áhugaverðra staða (geosites) í Kötlu jarðvangi.


· Brynja kynnti drög að samningum við ferðaþjónustuklasana og Rangárþing eystra um
hlutverk tengiliðanna í starfi jarðvangsins. Samþykkt að vinna málið áfram í samvinnu við
hlutaðeigandi aðila.


· Brynja kynnti drög að samningum við „jarðvangsfyrirtækin“. Samningstextinn hefur verið
einfaldaður og er í yfirlestri.


· Geoskólaverkefnið. Brynja hefur verið í sambandi við aðila sem gæti hugsanlega tekið að sér
þetta verkefni. Ákveðið að halda áfram samráði við viðkomandi.


· Merkingar á fatnaði. Brynju falið að vinna að málinu.


· Brynja og Sigurður fara á árlegan haustfund European Geoparks Network í lok september og
flytja bæði erindi á ráðstefnu UNESCO í framhaldi fundarins.


3. Verkefni framundan


· Jarðvangskort. Kynnt drög að sliku korti þar sem helstu jarðfræðieinkenni eru dregin fram,
gönguleiðir og tjaldstæði. Fyrir liggur ákvörðun um að gera sameiginlegt ferðakort fyrir
jarðvanginn. Ákveðið að kanna hvort hægt sé að tengja verkefnið Atlas verkefni SASS.
Sigurður mun setja sig í samband við Guðlaugu Ósk Svansdóttur í því sambandi.


· Skiltamál. Ýmis verkefni þar í gangi, varðar m.a. viðhald núverandi skilta og að bæta inn
UNESCO merkingu.


· Halda þarf fund/workshop varðandi sýningu í samvinnu við gestastofuverkefnið, stefnt að því
í október.


· Rætt um vinnu varðandi vottun jarðvangsins 2017. Stefnt að því að hefja þá vinnu eftir áramótin.
Fjárhagsstaða


1. Aðalbókarhreyfingar
· Farið yfir stöðuna.


2. Framlag og greiðslur frá sveitarfélögum
· Formaður mun fara yfir málin og vera í sambandi við sveitarfélögin í því sambandi.


3. Erlend samstarfsverkefni – verkefnastaða og fjárhagur
· Frestað til næsta fundar.


Fleira ekki og fundi slitið kl. rúmlega 15.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.