Fundargerð - 11. apríl 2016
26. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 11. apríl 2016 kl. 13-16 á skrifstofu sveitarstjóra á Hvolsvelli.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem
ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri jarðvangsins.
Ásgeir formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund.
· Verkefnastaða – Brynja fór yfir málin
o Vinnu miðar vel áfram varðandi ábendingar frá úttektaraðilum
o Gott samstarf við tengiliða jarðvangsins í héraði (Árný Lára, Þorbjörg/Unnur, Þórdís)
o Unnið að umsóknum í sjóði (SASS/Pálmi Jónsson) varðandi sýningu í Brydebúð og Geo-skóla
o Samningar vegna notkunar á lógó – enginn í höfn ennþá. Eva Björk kynnti hugmyndir um
lágmark 50.000 kr/ári, hámark 250.000 kr/ári (veltutengt). Forsenda samt að kynna þetta
mjög vel, álitamál hvort þetta hafi e.t.v. áhrif á gjöld aðilanna til Markaðsstofunnar. Umræða
um að tengja þetta gæðaviðmiðum (t.d. Vakann), náttúruvernd og tilteknum markhópum
ferðaþjónustunnar. Ljóst að margir ferðamannastaðir jarðvangsins eru í verulegri hættu
vegna ágangs ferðamanna, gríðarleg fjölgun þeirra nú i vetur. Spurning hvernig hægt er
tengja betur saman jarðvanginn, fyrirtækin og ábyrgar úrbætur á þessu sviði.
o Kynnt voru drög að jarðfræðikorti jarðvangsins, unnið verður áfram að þeim, m.a. í samvinnu
við Vatnajökulsþjóðgarð. Ábending um að e.t.v. hafi geosites verið fækkað um of á síðasta
stjórnarfundi.
o Kynnt drög að nýjum fræðsluborðum (sbr. styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða).
o Rætt um áreiti blaða, tímarita o.fl. varðandi óskir um auglýsingar. Samþykkt að halda öllu
slíku í algjöru lágmarki og skoða málið betur, t.d. með Markaðsstofu Suðurlands.
o Samstarf um geoskóla ekki farið af stað.
· Fjármál
o Síðasta greiðsla hefur borist frá SASS (styrkur frá 2015)
o 10 mkr styrkur hefur fengist frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
o Enn skortir talsvert á að fjármögnun jarðvangsins 2016 sé fullnægjandi
o 0,8 mkr af 1 mkr styrk varðandi Geoskóla hefur borist
o Finna þarf nýjan bókara fyrir jarðvanginn
o Framkv.stjóri óskar eftir að stofnaður verði sérstakur reikningur fyrir styrkjafé. Bent var á að
hægt eigi að vera halda utan um slík mál í gegnum einn reikning, sbr. sveitarsjóði o.s.frv.
o 0,3 mkr vegna verndunar jarðminja frá Umhverfisstofnun
o 1,5 mkr vegna GeoVR sýningar og myndbandsupptöku (samþ. styrkur en verður ekki
greiddur fyrr en að verkefni loknu)
o Ganga þarf frá útgáfu kreditkorts fyrir jarðvanginn og huga að símamálum.
· Sýnileiki og trúverðugleiki jarðvangsins
o Að mati framkvæmdastjóra þurfa sveitarfélögin að hafa jarðvanginn meira með í ráðum
þegar kemur að skipulagsmálum þar sem geosite koma við sögu (vísað m.a. til
fyrirkomulagsins hjá Reykjanes Geopark), m.a. í ljósi samskipta við Framkvæmdasjóð
ferðamannastaða. Skipulagsvaldið er hjá einstökum sveitarfélögum og einstakir
landeigendur hafa líka um það að segja hvernig uppbyggingu ferðamannastaða í þeirra eigu
er háttað. Málið er því í eðli sínu flókið. Framkvæmdastjóri beinir því til stjórnarinnar að huga
nánar að þessum málum.
· Management plan jarðvangsins
o Framkvæmdastjóri leggur til að hún hefji vinnu við þetta í haust. Skilgreina þarf aðkomu
hagsmunaðila í þessu sambandi (skipulagsfulltrúar, sveitarstjórnir, landeigendur, lögreglan
o.fl.)
· EGN bók, 2. útgáfa
o Ákveðið að kaupa 100 eintök. Nýtast m.a. sem gjafir til samstarfsaðila.
· Jarðvangsvika
o Kynnt drög að dagskrá vikunnar.
· Ráðningarsamningur framkvæmdastjóra
o Í samræmi við ákvæði í ráðningarsamningi framkvæmdastjóra var rætt um endurskoðun
hans. Formanni falið að fylgja málinu eftir.
Fleira ekki og fundi slitið kl. 16.