Fundargerð - 6. maí 2016
27. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 6. maí 2016 kl. 11-12 á skrifstofu sveitarstjóra á Hvolsvelli.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Eva Björk Harðardóttir var í símasambandi.
Ásgeir formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund.
Rætt um endurnýjun ráðningarsamnings framkvæmdastjóra. Laun hans hækka skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags íslenskra náttúrufræðinga frá 1. september 2015. Stjórnin er sammála um að launin taki breytingum skv. kjarasamningi en leitað verði samráðs við kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi röðun í launaflokka. Þá verði framkvæmdastjóra látinn í té bifreið vegna starfans.
Rætt um bókhald jarðvangsins, og kom Ágúst Ingi Ólafsson þá inn á fundinn. Hann mun athuga stöðuna á bókhaldinu og í framhaldinu kemur í ljós hvort Rangárþing eystra mun taka verkefnið að sér.