Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 02. febrúar 2016

25. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 2. febrúar 2016 kl. 14-18 á skrifstofu sveitarstjóra í Vík.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem
ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri jarðvangsins.


Ásgeir formaður setur fund. Gengið var til fyrirliggjandi dagskrár.


1. Fjármál

· Ekki hafa fengist frá forsætisráðuneytinu en málefni jarðvangsins hafa þar verið til skoðunar.
· 2015 lögðu sveitarfélögin 9 mkr til jarðvangsins auk 3 mkr frá SASS. Nú í byrjun ársins hafa
fengist 1,3 mkr í styrki frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu. Í áætunum sveitarfélaganna er á þessu stigi gert ráð fyrir 8 mkr fjárveitingu
til jarðvangsins 2016.
· Gjaldtaka sveitarfélaga gagnvart nýtingu þjóðlenda. Sveitarfélögin hafa ekki tekið afstöðu hvað
þetta varðar.
· Umræða er í gangi innan klasanna á svæðinu um aðkomu þeirra að starfsemi jarðvangsins.
Rætt var ítarlega um þann fjármögnunarvanda sem jarðvangurinn stendur frammi fyrir.


2. Aðgerðaráætlun varðandi undirbúning að vinnu fyrir úttektina 2017


· Auka sýnileika EGN/GGN á skiltum. Bæta límmiðum á núverandi skilti.
· Efla samstarf við aðra jarðvanga – Brynja mun útskýra að það sé nú þegar í gangi
· Auka þarf samvinnu sveitarfélaganna til að efla sýnileika svæðisins, Markaðsstofa Suðurlands
· Fjölga starfsmönnum jarðvangsins. Fáist meira fjármagn verður það hægt. Að öðrum kosti verður
að reyna að ná sem mestri framlegð úr núverandi tengiliðum.
· Gerð og þróun fræðsluefnis fyrir skóla svæðisins. Geoskólastyrkurinn nýtist þarna.
· Samningar við fyrirtæki o.s.frv. – vinna í gangi.
· Betri vegmerkingar gagnvart einstökum geosites.
· Nýta Drumbabót, m.a. til að sýna drumba sem losnað hafa. Svæðið nýtur nú þegar
hverfisverndar
· Útbúa eina Geogestastofu. Tækifæri til þess í Kötlusetri þar sem endurnýja þarf sýningu. Í Lava
center á Hvolsvelli er gert ráð fyrir einhverjum sýnileika jarðvangsins.
· Markaðssetja mikilvægi UNESCO Global Geoparks vottunarinnar, gæðastimipill
· Þróa fréttabréf jarðvangsins, þátttaka sveitarfélaganna mikilvæg
· Heimasíða og facebooksíða jarðvangsins verði virkari sem kynning á svæðinu
· Skortur á heildstæðu jarðvangskorti. Umhugsunarefni að núna gefa tvö sveitarfélög jarðvangsins
út sameiginlegt kort með tveimur sveitarfélögum utan jarðvangsins.
· Mikilvægt að jarðvangurinn sé merktur á leiðinni að honum. Líklega torsótt gagnvart reglum
Vegagerðarinnar
· Bókaútgáfa. Fundið var að því að ekki er til heildstætt rit/handbók um jarðvanginn. Fjárfrekt
verkefni og styrkir torsóttir.
· „Jarðvangshorn“ í söfnum og gestastofum vantar. Ætti að kynna netverkið og sameiginlegar
áherslur jarðvanganna.


3. Samningar og reglur fyrir fyrirtæki
· Farið yfir fyrirliggjandi drög. Stjórnin mælir með að þau verði einfölduð.


4. Sýnikleiki og kynning fyrir heimamönnum
· Mikilvægt að sveitarfélögin noti lógó jarðvangsins í starfi sínu. Samþykkt að Brynja þrói frekar
drög að samningi milli jarðvangsins og einstakra sveitarfélaga þar sem m.a. eru tíunduð atriði
sem skipta máli varðandi sýnileika jarðvangsins.


5. Fækkun geosites:
· Farið yfir fyrirliggjandi lista yfir 81 geosite. Samþykkt að einbeita sér að eftirfarandi stöðum í
starfinu framundan:
· Drangurinn í Drangshlíð
· Dyrhólaey, Dyrhólaós, Loftasalahellir
· Hjörleifshöfði
· Katla, Mýrdalsjökull, Mýrdalssandur
· Kirkjugólf
· Skaftáreldahraun
· Skógafoss
· Steinahellir
· Þórsmörk
· Höfðabrekka/Höfðabrekkuheiði
· Laufskálavarða
· Álftaversgígar
· Drumbabót
· Dverghamar
· Eldgjá, Ófærufoss
· Emstrur/Fjallabak
· Eyjafjallajökull, Gígjökull, Steinholtsjökull
· Fimmvörðuháls, Magni og Móði
· Fjaðrárgljúfur
· Lakagígar
· Landbrotshólar
· Langisjór, Fögrufjöll, Grænifjallgarður
· Markarfljótsgljúfur, Markarfljótsaurar
· Reynisfjall, Reynisdrangar, Reynisfjara
· Seljalandsfoss, Gljúfrabúi
· Skaftá
· Sólheimajökull, Sólheimaheiði
· Vík (older part of the village)
· Þykkvabæjarklaustur


6. Næstu skref varðandi management plan:
· Rætt, en ákveðið að sækja ekki að þessu sinni um í Framkvæmdasjóð ferðamála varðandi þetta.


7. Jarðminjavernd
· Ákveðið að þessu málefni verði gerð skil í samningi jarðvangsins við sveitarfélögin.


8. Bílastæðagjald
· Er í farvegi varðandi umsóknir sveitarfélaga í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.


9. Rögnvaldur rannsóknir á ferðamönnum
· Mismunandi viðhorf hjá einstökum sveitarfélögum


10. Wapp
· Umræða um það hvort jarðvangurinn eigi að borga fyrir það að vera með gönguleiðir aðgengilegar í appi hjá þessum aðila. Ákveðið að skoða málið betur varðandi kostnað.


11. Geoskólar
· Samþykkt að skoða betur hver staða einstakra grunnskóla á svæðinu er varðandi námsefni sem
getur nýst í þessu sambandi. Fengist hefur 1 mkr styrkur til verkefnisins. Hætt við að kaupa þurfi
þjónustu til að koma þessu verkefni í gang en æskilegt væri að hann nýttist til að styrkja rekstur
jarðvangsins.


12. Umsóknir í Framkvæmdasjóða ferðamannastaða (umsóknarfrestur rennur út á miðnætti)
· Einstök sveitarfélag munu senda inn umsóknir.


13. Lagerstaðan á bæklingum
· Samþykkt að prenta flyer bækling, Klausturstíginn og Áhugaverða áfangastaði. Sveitarfélögin
munu skipta kostnaði á milli sín. Sala á fyrirliggjandi efni skilaði um 500.000 kr inn í rekstur
jarðvangsins 2015.


14. Annað
· Rætt var á fundinum um mikilvægi þess að koma á einhvers konar fagráði jarðvangsins þar sem
sérfræðingar á mismunandi sviðum væru í leiðbeinandi hlutverki varðandi áherslur í starfi
jarðvangsins.


Fleira ekki, fundi slitið um kl. 18.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.