Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 30. September 2015

24. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 30. September 2015 kl. 13:00 í Kirkjubæjarstofu á Kirkjubæjarklaustri.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem
ritaði fundargerð. Einnig sátu fundinn Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri jarðvangsins, Guðlaug Ósk Svansdóttir, Eiríkur Vilhelm Sigurðsson og Þorbjörg Ása Jónsdóttir.


Ásgeir formaður setur fund. Gengið var til fyrirliggjandi dagskrár.


· Brynja greindi frá helstu þáttum í starfinu frá síðasta stjórnarfundi


o Stofnfundur Samráðsvettvangs íslenskra jarðvanga, Brynja situr þar í stjórn.


o ProGEO fundur og skoðunarferð um Suðurland. Nýttist m.a. vel fyrir framkvæmdastjóra til að
mynda tengsl við aðila í stjórnkerfinu auk kynningar á áherslum í jarðminjavernd.


o EGN fundur og ráðstefna í Rokua í Finnlandi. Þar var Reykjanes Geopark m.a. tekinn inn í
netverkið. Brynja og Sigurður sóttu fundinn og nýttist hann m.a. vel til tengslamyndunar.


Katla jarðvangur hélt sinni vottun, en nú einungis til tveggja ára. Brynja greindi frá helstu
atriðum í úttektinni en formlegt bréf þar að lútandi er enn ókomið frá Global Geoparks Network.


· Rætt um fyrirkomulag samstarfsins innan jarðvangsins varðandi t.d. uppbyggingu áfangastaða.
Sjónarmið kunna að vera mismunandi milli t.d. ferðaþjónustuaðila og klasa þeirra annars vegar og
sjónarmið jarðvangsins varðandi ábyrga vernd og nýtingu jarðminja hins vegar. M.a. velt upp þeirri
hugmynd að ferðaþjónustan á svæðinu kynni sig frekar undir merki jarðvangsins (á öllu svæðinu),
m.a. á heimasíðu. Þá þyrfti ferðaþjónustan jafnframt að gangast undir þau skilyrði sem aðild að
Global Geoparks Network gerir. Fram kom að á næsta félagsfundi klasans Friður og frumkraftar
verður þetta rætt (líklega í byrjun nóvember). Einnig verður málið tekið fyrir á stjórnarfundi VisitVík á
næstunni.


· Umræða um fjármögnun. Varðar m.a. rekstur jarðvangsins annars vegar og uppbyggingu
áfangastaða hins vegar.


· Brynja kynnti gögn frá North Pennines Geopark í Bretlandi varðandi management plan o.fl. en
forsvarsmaður hans hefur boðið fram aðstoð við slíkt hjá Kötlu jarðvangi. Fundarmenn sammála um
að það væri forgangsverkefni næstu mánaða að vinna að slíku fyrir Kötlu jarðvang til þess að halda
utan um starfsemina næstu tvö árin þannig að fjögurra ára vottun náist 2017.


· Samþykkt að stefna að því að hafa á takteinum hnitmiðaðan texta um hvað það felur í sér að vera
jarðvangur, jafnframt verði unnin drög að stefnumótunarplaggi, m.a. á grundvelli athugasemda sem væntanlegar eru frá GGN. Samþykkt að leita eftir ráðgjöf frá SASS við stefnumótunarvinnuna.


· Stefnt að næsta stjórnarfundi, síma- eða fjarfundi, kl. 10 miðvikudaginn 4. nóvember.


· Brynja fór yfir verkefni sín framundan; fundi með grunnskólunum, ráðuneytum, háskólum,
Landgræðslunni og Skógræktinni. Einnig kynningarfundi fyrir rekstraraðila og einstaklinga í
jarðvanginum.


· Staðan á fjármálum jarðvangsins kynnt.


Fleira ekki, fundi slitið kl. 15:40.

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.