Fundargerð - 21. janúar 2015
18. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs (símafundur) haldinn 21. janúar 2015 kl. 15-16.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem
ritaði fundargerð.
Á fundinum var farið yfir minnisblað um mat á umsækjendum sem formaður hafði sent á aðra stjórnarmenn eftir síðasta fund. Samþykkt var að kalla þrjá umsækjendur, þær Brynju Davíðsdóttur, Guðlaugu Ósk Svansdóttur og Jónu Björk Jónsdóttur aftur til viðtals. Jafnframt var formanni falið að hafa samband við meðmælendur þessara umsækjenda og gera minniblað um þau viðtöl og senda á stjórnarmenn.
Fleira ekki, fundi slitið.