Fundargerð - 17. mars 2015
20. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn á skrifstofu sveitarstjóra á Hvolsvelli 17. mars 2015 kl. 12.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem
ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri jarðvangsins.
Ásgeir formaður setti fund, fundargerðir 15. – 19. fundar staðfestar með undirritun. Síðan var gengið til
dagskrár.
· Skrifstofubúnaður, tölva, sími o.fl
Samþykkt að sveitarfélögin skipti með sér kostnaði vegna kaupa á tölvu, prentara, myndavél og síma
fyrir framkvæmdastjóra í sömu hlutföllum og föst framlög sveitarfélaganna til jarðvangsins.
· Bókhald og umsjón með greiðslum jarðvangsins
Samþykkt að Elísabet Ásta Magnúsdóttir taki að sér bókhaldsþjónustu fyrir jarðvanginn.
· Prókura félagsins ofl.
Samþykkt að Brynja Davíðsdóttir og Elísabet Ásta Magnúsdóttir verði prókúruhafar jarðvangsins auk
Sigurður Sigursveinssonar. Brynja Davíðsdóttir verði framkvæmdastjóri í stað Steingerðar
Hreinsdóttur. Nýtt lögheimili félagsins og heimilsfang verði Austurvegur 4, 860 Hvolsvelli.
· Jarðvangsvikan
Ákveðið að þema vikunnar taki mið af ári jarðvegsins og verði við það miðað að a.m.k. einn viðburður
verði dag hvern í jarðvanginum. Ákveðið að leita samstarfs við Búkollu og Vitann um kynningu á
dagskrá vikunnar (auk kynningu á vef sveitarfélaganna og samstarfsaðila).
· Tillögur að uppbyggingu og verndun áfangastaða ofl.
Framkvæmdastjóri kynnti hugmynd um þriggja þrepa vernd varðandi áhugaverða staði (geosite) í
jarðvanginum og tók m.a. Skógafoss, Steinahelli og Dyrhólaey sem dæmi, svo og Svartafoss í
Skaftafelli. Samþykkt að vinna áfram með þessar hugmyndir í samvinnu við sveitarfélögin.
Framkvæmdastjóri velti upp mögulegri skörun á hlutverki Kötlu jarðvangs og starfa á vegum
sveitarfélaganna varðandi skipulagsmál o.fl. Samþykkt að halda sérstakan fund þar sem farið verði
yfir þessi mál.
Þá kynnti framkvæmdastjóri hugmyndir um leiðir til að jarðvangurinn verði öflugri vettvangur
samvinnu sveitarfélaganna þriggja.
Framkvæmdatjóri kynnti hugmyndafræðina Leave no trace.
· Heimsókn úttektaraðila
Framkvæmdastjóri fór yfir ýmis atriði í þessu sambandi; gestastofur o.fl. Mikilvægt að undirbúa vel
heimsókn úttektaraðillanna í sumar þannig að vottunin viðhaldist.
· Önnur mál
Sigurður kynnti drög að ársreikningi 2014. Reikningurinn samþykktur og undirritaður. Eigið fé
stofnunarinnar nam í árslok 637.912 kr. skv. efnahagsreikningi.
Ákveðið að tilnefna Kötlu jarðvang til Landstólpans, samfélagsviðurkenningar Byggðastofnunar.
· Heimsókn á skrifstofu jarðvangsins
Stjórnin lauk fundinum með heimsókn á nýja skrifstofu jarðvangsins.
Stefnt að stjórnarfundi þar sem samstarfsaðilar og tengiliðir jarðvangsins á svæðinu verði boðaðir.
Stefnt að fundinum í síðustu viku aprílmánaðar.
Fleira ekki, fundi slitið kl. 14:30