Fundargerð - 14. janúar 2015
17. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn á Hvolsvelli 14. janúar 2015 kl. 10-16:30.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir.
Á fundinum voru sjö umsækjendur teknir í starfsviðtöl. Rannveig Ólafsdóttir hafði dregið umsókn sína til baka
eftir síðasta stjórnarfund og að höfðu samráði í tölvupósti ákvað stjórnin að bjóða Kristínu Þóru Jökulsdóttur til viðtals í stað Rannveigar.
Í lok fundar var ákveðið að Ásgeir, formaður stjórnar, tæki saman greinargerð um viðtölin og sendi
stjórnarmönnum í tölvupósti.
Fleira ekki, fundi slitið.