Katla Geopark 
Self-Drive itinerary
Planning a trip to Iceland?  We would love to guide you through the very best spots within our UNESCO Global Geopark!
 
This FREE Digital Download allows you to plan your trip (sites, accommodation, activities, etc) and learn about geology along the way!
Please check your inbox / junkmail box for Guide!

Fundargerð - 12. júní 2015

22. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps 12. júní 2015 kl. 09:30.

Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Eva Björk Harðardóttir og Sigurður Sigursveinsson sem
ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri jarðvangsins.

Ásgeir formaður setti fund og gengið var til áður boðaðrar dagskrár:

1. Yfirferð yfir verkefni jarðvangsins frá síðasta stjórnarfundi. Brynja fylgdi þessum lið úr hlaði. Gerð var áfangaskýrsla og verkáætlun vegna styrks frá SASS frá því í fyrra. Einnig var sótt um nýjan styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands varðandi fuglatengd verkefni og vöruþróun í því sambandi. Umsóknin er byggð á vinnu fyrri fuglaklasaverkefna á vettvangi SASS. Sent var erindi um fjárstuðning við jarðvanginn til fimm ráðuneyta, neikvætt svar hefur borist frá mennta- og menningarmálaráðuneytisinu. Umbeðin gögn, kort og textar, voru send UNESCO. Náttúrufræðistofnun vann kortin af jarðvanginum, honum að kostnaðarlausu. Framkvæmdastjóri tók þátt í ferð til Portúgal á vegum Erasmus+ verkefnis Háskólafélagsins. Þá heimsótti Brynja Fjaðrárgljúfur en Jóna Björk Jónsdóttir stýrir umbótum þar á grundvelli styrks sem fékkst til verkefnisins. Víðtækt samráð er í því verkefni við hagsmunaaðila. Tengiliðir jarðvangsins hjá sveitarfélögunum eru komnir með réttindi á facebooksíðu
jarðvangsins.

2. Jarðvangstengd verkefni á vegum Háskólafélagsins og þátttaka Kötlu jarðvangs í þeim.
Sigurður greindi frá Erasmus+ verkefni félagsins um Geo Education. Verkefnið felur í sér þróun aðferðafræði við náttúrufræðikennslu á vettvangi. Verkefnið felur að öðru leyti sér heimsóknir til samstarfslandanna, Króatíu, Póllands og Fortúgals. Stefnt er að því að sem flestir af vettvangi jarðvangsins fái tækifæri til að taka
þátt í þessum heimsóknum. Erlendu heimsóknirnar til okkar verða nú í júnílok og í októberbyrjun í haust.
Undir þessum lið var einnig rætt um leiðir til þess að auka almenna vitund íbúa sveitarfélaganna þriggja um
jarðvanginn, og nauðsyn þess að vinna að stefnumörkun fyrir jarðvanginn til næstu ára. Á þessu stigi skiptir þó mestu máli að undirbúa vel heimsókn úttektaraðilanna í ágúst.


3. Fjárhagsstaða verkefnisins
Framkvæmdastjóri og bókari jarðvangsins munu fara yfir stöðuna fyrir næsta fund.


4. Undirbúningur að vinnu við endurmat
Stefnt er að vinnufundi með tengiliðum mánudaginn 15. júní í Kötlusetri (kl. 9:30) og aftur mánudaginn 22.
júní.


5. Gerð móttökuplans vegna úttektaraðila – dagskrá
Sigurður mun senda ramma að dagskrá til stjórnarmanna og tengiliða jarðvangsins. Mikilvægt að huga vel að gistingu og matseðlum.


6. Verkefni næstu vikna
Rætt um kaup á fánum. Samþykkt að sveitarfélögin fjármagni þau kaup. Mikilvægt að þeir verði komnir í
notkun við komu úttektaraðilanna. Einnig var rætt um mikilvægi þess að þeim yrði komið upp við aðkomu að
jarðvanginum, við Eystri-Rangá og á Skeiðarársandi.


7. Önnur mál
Sigurður kynnti viðmið frá EGN um samstarf fyrirtækja og jarðvanga. Brynja tekur málið til skoðunar.

· Stefnt að næsta stjórnarfundi sem símafundi kl. 10 miðvikudaginn 5. ágúst. Fundi slitið kl. 11:15

Samþykkja fótspor

Þetta vefsvæði notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefsvæðið. Sjá nánar hér.