Fundargerð - 6. maí 2015
21. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn á Skógakaffi 6. maí 2015 kl. 09:45.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason, Sandra Brá Jóhannsdóttir (í forföllum Evu Bjarkar
Harðardóttur) og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig sátu fundinn Brynja Davíðsdóttir
framkvæmdastjóri jarðvangsins og tengiliðirnir Guðlaug Ósk Svansdóttir og Eiríkur Vilhelm Sigurðarson.
Ásgeir formaður setti fund.
Brynja lagði fram plagg um atriði til umfjöllunar er varða fjármál:
Samþykkt að Brynja taki þátt í ProGEO ráðstefnu í Reykjavík 8.-12. september og jarðvangurinn greiði
þátttökugjaldið. Samþykkt að skipta út fartölvu framkvæmdastjóra fyrir fartölvu með betri skjáupplausn.
Sótt var umhverfisstyrk til Landsbankans í apríl og stefnt að umsókn í Uppbyggingarsjóð Suðurlands í næstu viku.
Brynja greindi frá ýmsu sem hefur verið á döfinni frá síðasta stjórnarfundi:
· Jarðvangsvikan – þátttakan sæmileg, fjölgun frá fyrra ári í Hjörleifshöfðahlaupinu. Viðtal var við
Brynju í morgunþætti Ríkisútvarpsins þar sem jarðvangsvikan var til umfjöllunar.
· Greint frá ferðum til Póllands og Frakklands, og heimsókn í nýja gestastofu Reykjanes jarðvangs.
· Brynja sat stefnufund Vatnajökulsþjóðgarðs í vikunni.
· Greint frá nefndarstarfi á vettvangi European Geoparks Network, Coastal Thematic Group og
Volcanic Thematic Group, en Brynja og Sigurður hafa tekið þátt í starfi þessara hópa.
· Brynja vakti máls á því hvort jarðvangurinn ætti að hafa skoðun á álitamálum varðandi breytta
veglínu um Mýrdal vegna mögulegra áhrifa á jarðminjar. Formaður greindi frá því að veglínan væri
komin inn á aðalskipulag en þó skilyrt því að vegurinn komist fyrir sunnan byggðarinnar í Vík að mati
Vegagerðarinnnar þegar ströndin verður komin í jafnvægi. Þessi mögulega veglína á síðan eftir að
fara í umhverfismat (ef vegurinn telst komast fyrir sunnan byggðarinnar). Um allmargra ára ferli er
að ræða áður en kemur til hugsanlegra framkvæmda. Einnig var rætt um hrun úr Dyrhólaey 4. maí og
hlutverk jarðvangsins varðandi öryggismál á áfangastöðum jarðvangsins og fleira. Ákveðið að Brynja dragi saman helstu atriði varðandi skyldur jarðvangsins gagnvart EGN/GGN og sendi á stjórnina.
Skipulagsvaldið er hjá einstökum sveitarfélögum en fram kom m.a. í umræðunni að mikilvægt væri
að jarðvangurinn og tengiliðir hans hefðu samráð og samvinnu þegar unnið er að undirbúningi
framkvæmda við áningarstaði jarðvangsins í sveitarfélögunum þremur, m.a. með verndun og
sjálfbæra nýtingu jarðminja að leiðarljósi.
· Greint frá fyrirhugaðri stofnun National Forum of Icelandic Geoparks og fyrirhugaðri stofnun
UNESCO Global Geoparks.
· Rætt um undirbúning að heimsókn úttektaraðilanna í ágústbyrjun. Brynja hefur haft samband við
Snorra hjá Vatnajökulsþjóðgarði og fleiri aðila til að taka þátt í dagskránni. Ákveðið að Brynja í
samvinnu við Sigurð og tengiliðina vinni saman að samantekt á gögnum sem skila þarf til
úttektaraðilanna fyrir 1. júlí nk. Auk gagnanna þarf að skipuleggja þriggja daga dagskrá
úttektaraðilanna 6. – 8. ágúst og útvega gistingu. Sigurður sendir til viðmiðunar dagskrá
úttektaraðilanna 2011.
· Guðlaug vakti máls á þeim möguleika að sækja ráðgjöf til SASS varðandi vinnu við stefnumótun
jarðvangsins, en fundarmenn voru sammála um nauðsyn þess að skerpa á henni og treysta
samstarfið við ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
· Stefnt að næsta fundi í Kötlusetri kl. 9:30 föstudaginn 12. júní. Fundi slitið kl. 12:10.