Fundargerð - 05. ágúst 2015
23. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs (símafundur) 5. ágúst 2015 kl. 10:00.
Mætt: Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmason og Sigurður Sigursveinsson sem ritaði fundargerð. Einnig
sátu símafundinn Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri jarðvangsins, Guðlaug Ósk Svansdóttir og Eiríkur Vilhelm Sigurðsson
Ásgeir formaður setur fund. Eina fundarefnið er að fara yfir stöðu mála varðandi skipulag á heimsókn
úttektaraðilanna tveggja sem koma til landsins síðar í dag. Brynja og Sigurður munu ná í þá til Keflavíkur
síðar í dag og í kvöld munu þeir snæða kvöldverð á Hótel Fljóshlíð með Brynju og Guðlaugu. Tengiliðir í
hverju sveitarfélagi hafa gengið frá ítarlegri dagskrá fyrir sitt sveitarfélag í samvinnu við stjórnarmenn og
sveitarstjóra viðkomandi sveitarfélaga. Brynja og Sigurður verða með úttektaraðilunum allan tímann, í
Rangárþingi eystra mun Guðlaug verða með þeim á fimmtudeginum, í Mýrdalshreppi verða Ásgeir og Eiríkur með þeim á föstudeginum en á þessari stundu er óljóst með Skaftárhrepp þar sem Þorbjörg Ása verður upptekin. Einstök sveitarfélög munu bera kostnað af veitingum og gistingu í sínu sveitarfélagi.
Fundarmenn lýstu ánægju með vel skipulagða dagskrá.
Fleira ekki, fundi slitið um kl. 11:45.