Fundargerð - 8. október 2014
14. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs haldinn 8. október 2104 kl. 11-12 í Fjölheimum á Selfossi.
Mætt: Rögnvaldur Ólafsson, Ásgeir Magnússon, Steingerður Hreinsdóttir og Sigurður Sigursveinsson. Ísólfur
Gylfi Pálmason, Jóhannes Gissurarson og Helga Þorbergsdóttir í símanum. Sigurður Sigursveinsson ritaði
fundargerð.
Dagskrá:
1. Styrkur frá SASS/Vaxtarsamningi 3 mkr, sótt var um 5 mkr.
Uppfærð rekstraráætlun kynnt, þar er gert ráð fyrir 6 mkr framlagi sveitarfélaganna (hafa verið 3
mkr/ári síðan 2009).
2. Yfirlit um fjárhagsstöðu jarðvangsins.
3. Breytingar á samþykktum, áður samþykktar á 12. fundi stjórnar 24. júní 2014. Stjórnin samþykkir
breytingarnar nú öðru sinni, sbr. reglur
Fyrirtækjaskrár:
Núverandi 7. gr.:
Stjórn stofnunarinnar skal skipuð fimm mönnum og fjórum til vara. Stjórn og varastjórn skal skipuð til tveggja ára í senn:
Tveir stjórnarmenn og einn til vara skulu tilnefndir af Háskólafélagi Suðurlands.
Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu Rangárþings eystra og Skógasafns.
Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu Mýrdalshrepps og Kötluseturs.
Einn stjórnarmaður og einn til vara skulu tilnefndir sameiginlega af hálfu Skaftárhrepps og Kirkjubæjarstofu.
Falli atkvæði á jöfnu skal atkvæði formanns ráða.
Tillaga að breyttri 7. gr.:
Stjórn stofnunarinnar skal skipuð þremur mönnum og tveimur til vara. Stjórnin skal skipuð til fjögurra ára í senn með eftirfarandi hætti, en
varamenn til eins árs í senn:
Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Rangárþings eystra og Skógasafns.
Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Mýrdalshrepps og Kötluseturs.
Einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af hálfu Skaftárhrepps og Kirkjubæjarstofu.
Einn varamaður skal tilnefndur sameiginlega af Háskólafélagi Suðurlands og Stofnun rannsóknarsetra HÍ.
Einn varamaður skal kosinn árlega á ársfundi af ferðaþjónustuaðilum sem gerst hafa aðilar að sjálfseignarstofnuninni.
Varamenn skulu að jafnaði boðaðir á stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétti.
Falli atkvæði á jöfnu skal atkvæði formanns ráða.
Núverandi 13. gr.:
Ársfundur
13. gr.
Gert er ráð fyrir að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu geti gerst aðilar að sjálfseignarstofnuninni gegn greiðslu árgjalds og seturéttar á ársfundi.
Stjórn félagsins undirbýr ársfund, og skal dagskrá hans vera eftirfarandi:
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur kynntur
Starfs- og fjárhagsáætlun
Önnur mál
Auk stjórnar og fyrrgreindra ferðaþjónustuaðila eiga fulltrúar stofnaðila seturétt á ársfundi.
Tillaga að breyttri 13. gr.:
Félagaaðild og ársfundur
13. gr.
Gert er ráð fyrir að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu geti gerst aðilar að sjálfseignarstofnuninni gegn greiðslu árgjalds og seturéttar á ársfundi.
Stjórn félagsins undirbýr ársfund, og skal dagskrá hans vera eftirfarandi:
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur kynntur
Starfs- og fjárhagsáætlun
Kosning varamanns í stjórn fyrir hönd ferðaþjónustuaðila sem aðild eiga að stofnuninni.
Undir þessum lið var rætt um aðkomu ferðaþjónustuaðilanna að stjórn jarðvangsins skv. breyttum
samþykktum og að ný stjórn muni fjalla um framhaldið.
4. Kynnt drög að dagskrá ráðstefnu um jarðvanginn 27. október í Vík.
5. Málefni til ákvörðunar:
a. Ráðning starfsmanns. Ekki er raunhæft að gera það fyrr en fyrir liggur afstaða
sveitarfélaganna til hækkunar framlaga til jarðvangsins.
b. Hækkun á framlagi sveitarfélaga 2015
Samþykkt að senda formlegt erindi til sveitarstjórnanna þriggja um:
hækkun á framlagi ásamt meðfylgjandi rekstraráætlun
leita eftir tilnefningum í stjórn skv. breyttum samþykktum
og útskýrð verði tillaga um 25% starfshlutfall í hverju sveitarfélagi í þágu jarðvangsins
c. Fjárveitingar ríkisins. Samþykkt að stjórnin sendi frá sér ályktun varðandi fjárveitingar til
þekkingarstarfsemi í jarðvanginn.
6. Önnur mál
Rætt um stöðu jarðvangsins og afrakstur þess að hann er hluti af evrópslku og alþjóðlegu samstarfi
jarðvanga.